Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2025

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 07/2025 dagsettri 16. júlí sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá. 
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 15,25% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2025.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2025:

• Vextir óverðtryggðra útlána 8,00% (óbreyttir)

• Vextir verðtryggðra útlána 4,00% (óbreyttir)

• Vextir af skaðabótakröfum 5,33% (óbreyttir)