Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 08/2025 dagsettri 20. ágúst sl. þar sem meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 15,25% fyrir tímabilið 1.–31. október 2025.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1.–31. október 2025:
• Vextir óverðtryggðra útlána 8,00% (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 4,00% (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 5,33% (óbreyttir)
Sjá nánar í meðfylgjandi skjali: