Fara beint í Meginmál

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns TM trygginga hf. til Varðar trygginga hf.

Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands hefur borist umsókn frá TM tryggingum hf., kt. 660269-3399, um heimild til að flytja hluta vátryggingastofns félagsins til Varðar trygginga hf., kt. 441099-3399, með vísan til 1. mgr. 34. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi.

Vátryggingastofninn samanstendur af lögboðnum ökutækjatryggingum, bílrúðutryggingum og kaskótryggingum ökutækja sem Verna MGA ehf., kt. 610421-0830, hefur hingað til dreift í umboði TM trygginga hf.

Við flutning vátryggingastofnsins mun Vörður tryggingar hf. yfirtaka öll réttindi og skyldur sem stofninum fylgja. Fyrir liggur jafnframt yfirlýsing Verna MGA ehf. um fyrirætlanir um áframhaldandi þjónustu á umræddum vátryggingastofni.

Samkvæmt 3. mgr. 34. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi ber fjármálaeftirlitinu að birta opinberlega tilkynningu vegna yfirfærslubeiðninnar og óska eftir skriflegum athugasemdum vátryggingataka, vátryggðra og annarra sem hafa sérstaka hagsmuni að gæta innan tiltekins frests sem eigi skal vera skemmri en einn mánuður.

Með tilkynningu þessari er óskað eftir því að vátryggingatakar, vátryggðir og aðrir sem sérstaka hagsmuni hafa að gæta við yfirfærslu vátryggingastofnsins komi skriflegum athugasemdum sínum á framfæri við Seðlabanka Íslands eigi síðar en hinn 29. ágúst nk.

Samkvæmt 5. mgr. 34. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi munu réttindi og skyldur vátryggingataka, vátryggðra og annarra samkvæmt vátryggingarsamningum halda sjálfkrafa gildi sínu við flutninginn. Vátryggingatökum er eftir sem áður heimilt að segja upp vátryggingarsamningum sem eru hluti af yfirfærðum stofni frá þeim degi þegar flutningur stofnsins á sér stað enda tilkynni þeir vátryggingafélagi um uppsögn sína skriflega innan mánaðar frá flutningsdegi.