Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá MSIG Insurance Europe AG til MS Amlin Insurance SE. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 23. mars 2025 frá þýska fjármálaeftirlitinu, BaFin.
Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu ekki síðar en 20. júní nk.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitir nánari upplýsingar ef óskað er.