Fara beint í Meginmál

Úthlut­un úr menn­ing­ar­sjóði tengd­um nafni Jó­hanne­s­ar Nor­dals

Styrkhafar ásamt Ásgeiri Jónssyni, seðlabankastjóra, Hildi Traustadóttur, formanni úthlutunarnefndar og Gylfa Magnússyni, formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands
Styrkhafar ásamt Ásgeiri Jónssyni, seðlabankastjóra, Hildi Traustadóttur, formanni úthlutunarnefndar og Gylfa Magnússyni, formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands

Í gær fór fram fjórtánda úthlutun úr menningarsjóði sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals fyrrverandi seðlabankastjóra. Menningarstyrknum er fyrst og fremst ætlað að styðja viðleitni einstaklinga og hópa sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti lands og þjóðar sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Í ár bárust 26 umsóknir um styrkinn og hlutu fimm verkefni styrk upp á samtals fimm milljónir króna.

Formaður úthlutunarnefndar menningarstyrksins er Hildur Traustadóttir og aðrir í nefndinni eru Guðrún Nordal og Jón Þ. Sigurgeirsson.

Minjasafn Austurlands hlýtur 1,5 milljónir króna í styrk til verkefnisins Skissur Kjarvals – forvarsla.

Styrkinn hlýtur Minjasafn Austurlands til að sinna forvörslu á 10 verkum Jóhannesar S. Kjarvals sem ráðgert er að verði til sýnis á sýningu sem Listasafn Akureyrar mun í samstarfi við Minjasafn Austurlands halda á verkum Kjarvals í nóvember næstkomandi. Sýningin ber yfirskriftina Undir berum himni.

Brýn þörf er fyrir forvörslu á þessum einstöku verkum Kjarvals sem mörg hafa aldrei komið fyrir sjónir almennings áður. Með forvörslu á verkunum verður tryggt að arfleið Kjarvals lifir áfram og verði aðgengileg almenningi til framtíðar.

Björg Björnsdóttir, safnstjóri mynjasafns austurlands, tekur við styrkveitingu frá Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands
Björg Björnsdóttir, safnstjóri mynjasafns austurlands, tekur við styrkveitingu frá Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands

Hið íslenska bókmenntafélag og Eggert Pálsson hljóta 1,3 milljónir króna í styrk til verkefnisins Þorlákstíðir.

Um er að ræða útgáfu á uppritun Eggerts Pálssonar af tónmáli latneska helgisöngsins Þorlákstíða sem varðveist hefur í handriti frá 14. öld. Tíðasöngurinn er kenndur við Þorlák biskup helga, Skálholtsbiskup.

Útgáfan er afrakstur mikillar þekkingar- og nákvæmnisvinnu undanfarin 30 ár og er ætlunin með henni að gera aðgengilegan einstakan tónlistararf Íslendinga sem nýtast mun bæði til söngs, kennslu og fræðistarfa um allan heim. Dr. Ásdís Egilsdóttir er meðhöfundur þessa verks og ritar hún kafla um Þorlák, sögu hans og helgi, innanlands sem utan.

Útgáfan er mikilvægt innlegg í miðlun og varðveislu menningar þjóðarinnar. Hún mun nýtast til kennslu, rannsókna og söngs, bæði innan lands og utan.

Eggert Pálsson tekur við styrkveitingu frá Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands
Eggert Pálsson tekur við styrkveitingu frá Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands

Linn Janssen myndhöfundur hlýtur 1,2 milljónir króna í styrk til verkefnisins Fram í dagsljósið. Konur í gamla daga.

Styrkinn hlýtur Linn Janssen til að myndlýsa barnabók sem mun upplýsa unga lesendur um mikilvægt hlutverk íslenskra kvenna á fyrri öldum. Tímabilið er frá miðöldum og fram á síðari helming 19. aldar. Bókin mun sýna fram á hversu fjölbreytt störf kvenna voru og samfélagslega þýðingarmikil. Ætlunin er að kynna fyrir börnum magnaðar alþýðukonur í bland við yfirstéttarkonur og sögufrægar konur.

Textahöfundur bókarinnar er Guðrún Ingólfsdóttir bókmenntafræðingur.

Linn Janssen tekur við styrkveitingu frá Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands
Linn Janssen tekur við styrkveitingu frá Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands

Erla Dóris Halldórsdóttir hlýtur hálfrar milljónar króna styrk til verkefnisins Berklar á Íslandi.

Verkefnið snýr að því að rannsaka berklaveiki á Íslandi og kynna niðurstöðuna í bók sem stefnt er á að komi út í ár.

Berklabakterían fannst fyrst á Íslandi árið 1890 en fyrir þann tíma var jafnvel haldið að berklar væru ekki til á Íslandi.

Í byrjun tuttugustu aldar var dánartíðni á Íslandi af völdum berklaveiki með því hæsta sem gerðist í Evrópu. Í dag er Ísland aftur á móti í hópi landa með lægstu tíðni berklasmits.

Í rannsókninni er fjallað um sjúkdóminn og hvernig heilbrigðisyfirvöld reyndu að sporna við því að smit bærist á milli manna. Þá verður einnig fjallað um fjölmarga einstaklinga hér á landi sem urðu berklum að bráð.

Útgáfa bókar um berkla á Íslandi er mikilvægt framlag til menningarsögu Íslands. Þetta er fyrsta heildarrit um þennan lífhættulega smitsjúkdóm sem hjó skörð í margar fjölskyldur á Íslandi og olli miklu manntjóni, aðallega meðal ungs fólks í blóma lífsins.

Erla Dóris Halldórsdóttir tekur við styrkveitingu frá Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands
Erla Dóris Halldórsdóttir tekur við styrkveitingu frá Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands

Jón Kristinn Einarsson hlýtur hálfrar milljónar króna styrk til verkefnisins Hlaðvarp um Íslandssöguna.

Verkefnið sem fær hér styrk felst í gerð tuttugu hlaðvarpsþátta þar sem farið er í gegnum Íslandssöguna, öld fyrir öld.

Jón Kristinn hyggst taka upp tuttugu hlaðvarpsþætti þar sem rætt er við valinkunna sérfræðinga um tiltekið tímabil eða atburð í hverjum þætti. Meðal annars verður fjallað um landnám Íslands, Sturlungaöld, og siðaskiptin.

Jón Kristinn Einarsson tekur við styrkveitingu frá Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands
Jón Kristinn Einarsson tekur við styrkveitingu frá Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands
Meðlimir úthlutunarnefndar, Guðrún Nordal, Hildur Traustadóttir, formaður nefndarinnar, og Jón Þ. Sigurgeirsson.
Meðlimir úthlutunarnefndar, Guðrún Nordal, Hildur Traustadóttir, formaður nefndarinnar, og Jón Þ. Sigurgeirsson.