Í gær fór fram fimmtánda úthlutun menningarstyrks sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals fyrrum seðlabankastjóra.
Menningarstyrknum er fyrst og fremst ætlað að styðja viðleitni einstaklinga og hópa sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti lands og þjóðar sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.
Í ár bárust 24 styrksumsóknir og hlutu sex verkefni styrk upp á samtals fimm milljónir króna.
Formaður úthlutunarnefndar menningarstyrksins er Erna Kaaber og aðrir í nefndinni eru Guðrún Nordal og Jón Þ. Sigurgeirsson.
Hörður Lárusson hlaut 1 milljón króna í styrk til verkefnisins Tákn lands og þjóðar.
Tákn lands og þjóðar er bók sem gefin verður út í haust af bókaútgáfunni Angústúru. Hörður er höfundur bókarinnar en hann er jafnframt grafískur hönnuður. Bókin fjallar um sögu, rætur og hönnun íslenska þjóðfánans, skjaldarmerkis og heiðursmerkja íslenska lýðveldisins. Sagan verður bæði sögð í rituðu máli og með ríkulega myndskreyttum köflum þar sem blandað verður saman ljósmyndum og nýjum frumteikningum sem eru sérstaklega gerðar fyrir bókina. Saman teiknar þetta upp sjónrænan og aðgengilegan kafla í sögu Íslands, sem hefur aldrei áður verið settur fram á einum stað.
Kvennakórinn Vox feminae hlaut 1 milljón króna í styrk til verkefnisins Varðveisla íslensks tónlistararfs - þjóðlög og trúarleg tónlist
Um er að ræða verkefni sem snýr að útsetningum íslenskra þjóðlaga og eldri trúarlegrar tónlistar fyrir kórinn. Hluti þessarar tónlistar hefur varðveist í handritum á tónlistarsöfnum landsins. Þarna má finna dýrmætan og mikilvægan menningararf. Kórinn hefur verið starfandi frá árinu 1993 og íslensk þjóðlög og trúarleg verk hafa einkennt lagaval kórsins. Jafnframt hefur kórinn lagt rækt við samtímatónlist og frumflutt verk sem samin hafa verið sérstaklega fyrir kórinn, eftir íslensk tónskáld.
ReykjavíkurAkademían hlaut 1 milljón króna í styrk til verkefnisins Sögur af jörðu: náttúra, umhverfi og sköpun í sögum frá landnámi til siðaskipta.
Um er að ræða bók með þessu heiti sem er eftir Viðar Hreinsson bókmenntafræðing. Verkið fjallar um náttúrusýn og -skilning á miðöldum, frá landnámi til siðaskipta. Ritið dregur fram fjölbreyttar birtingarmyndir náttúru og náttúruskilnings í íslenskum sagnabókmenntum frá landnámi til siðaskipta. Ritinu er ætlað að veita nýja innsýn í fyrri tíma með víðu sjónarhorni undir augliti eilífðarinnar.
Beitt er fræðilegri nýsköpun umhverfishugvísinda á íslenskar miðaldabókmenntir frá landnámi til siðaskipta. Ljósi er varpað á ólíkar birtingarmyndir umhverfis og náttúru í fjölbreyttu úrvali fornra sagna og kvæða.
Steingrímur Jónsson hlaut 750 þúsund króna styrk til verkefnisins Typographia Islandica eftir sr. Gunnar Pálsson.
Styrkinn hlaut Steingrímur til að sinna þýðingu og undirbúningi á útgáfu á prentsmiðjusögu sr. Gunnars Pálssonar, Typographia Islandica. Verkið snýr að því að þýða verk sr. Gunnars á íslensku, taka saman og rita fræðilegan formála. Bókin verður að öllum líkindum með íslenskum og latneskum texta, með ljósmyndum auk formála og skýringa. Stefnt er að því að ljúka verkinu árið 2027.
Hafsteinn Níelsson og Óliver Þorsteinsson hlutu 750 þúsund króna styrk til verkefnisins Ófriðaröld - söngleikur upp úr Sturlunga sögu
Þeir Hafsteinn og Ólíver skrifuðu saman verkið Ormstunga sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu á nýliðnu leikári. Nú munu þeir leiða saman hesta sína á ný og skrifa saman söngleik um Sturlungasögu. Sturlungaöld er einn merkasti og mannskæðasti tími Íslandssögunnar en þessi öld markaði lok á þjóðveldistíma landsins. Söngleikurinn mun gera þennan sagnaarf auðskiljanlegan með frumsaminni íslenskri tónlist sem byggir upp skemmtilega og fræðandi upplifun.
Félag um höfundarverk Magnúsar Pálssonar hlaut 500 þúsund króna styrk til verkefnisins Líf og starf Magnúsar Pálssonar
Markmiðið með verkefninu er að varðveita höfundarverk Magnúsar sem er einn áhrifamesti listamaður á Íslandi síðustu áratugi. Magnús hefur starfað þvert á listgreinar - frá texta og tónlist yfir í tvívíð verk og þrívíð og áfram yfir í margvíðan heim leiklista.
Hinu fjölbreytta höfundarverki Magnúsar verða gerð skil í bók og einnig þeim áhrifum sem hann hefur haft á þróun lista heima og erlendis. Slík samantekt hefur aldrei verið gerð.
Átta sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum sem Magnús hefur unnið á munu draga saman ítarlegt yfirlit yfir verk hans, rekja meginþræði ferils hans og heimspeki á bak við þverfaglega nálgun hans á listsköpun.