Fara beint í Meginmál

Væntingar markaðsaðila 6.–10. maí 2013 16. maí 2013

Dagana 6.–10. maí sl. kannaði Seðlabanki Íslands væntingar markaðsaðila til ýmissa hagstærða, svo sem verðbólgu og vaxta. Leitað var til 36 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör fengust frá 25 aðilum og var svarhlutfallið því 69%.

Niðurstöður könnunarinnar í maí sýna að væntingar markaðsaðila um ársverðbólgu hafa lækkað frá síðustu könnun sem framkvæmd var í lok janúar sl. Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að ársverðbólga verði að meðaltali um 3,5% á öðrum ársfjórðungi þessa árs og 3,7% á þeim þriðja, sem er um 0,6-0,7 prósentum minni verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í síðustu könnun bankans. Niðurstöður sýna einnig að markaðsaðilar vænta þess að ársverðbólga verði 4% bæði eftir eitt og tvö ár, sem er um ½ prósentu lækkun frá síðustu könnun. Þeir gera jafnframt ráð fyrir að ársverðbólgan verði að meðaltali 4,2% á næstu fimm árum og 4% á næstu tíu árum, sem er 0,3 og 0,4 prósentum minni verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í janúar. Markaðsaðilar vænta þess að gengi krónu gagnvart evru verði 163 krónur eftir eitt ár en það er lækkun á gengi evrunnar um 12 krónur frá janúarkönnuninni.

Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að veðlánavextir Seðlabankans haldist óbreyttir í 6% til loka þessa árs en að vextirnir hækki um 0,25 prósentur á fyrsta fjórðungi 2014 og verði þá 6,25%. Það eru 0,25 prósentum lægri vextir en þeir gerðu ráð fyrir í síðustu könnun bankans. Rúmlega helmingur markaðsaðila álitu taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt þegar könnunin var framkvæmd en rúmlega þriðjungur taldi taumhaldið vera þétt.

Sjá væntingakönnunina hér: Væntingakönnun markaðsaðila 2Q2013.xlsx

Sjá ennfremur: Væntingakönnun markaðsaðila