Fara beint í Meginmál

Varað við kerfislægri netáhættu vegna háþróaðra gervigreindarlíkana 8. júlí 2026

Evrópska kerfisáhætturáðið (ESRB) hefur birt viðvörun um kerfislega netáhættu sem stafað getur af háþróuðum gervigreindarlíkönum (e. frontier AI models). ESRB bendir á að slík líkön geti breytt netógnarumhverfi fjármálakerfisins og aukið hraða, umfang og flækjustig netárása.

Í viðvörun ESRB kemur fram að þróunin geti haft áhrif á stafrænan viðnámsþrótt fjármálakerfisins, meðal annars með hraðari greiningu veikleika, sjálfvirkri nýtingu þeirra og styttri viðbragðstíma. ESRB bendir á að ef geta árásaraðila eykst hraðar en varnargeta fjármálafyrirtækja geti það haft áhrif á fjármálastöðugleika, en ekki aðeins netöryggi einstakra fyrirtækja. ESRB hefur jafnframt hækkað mat sitt á kerfislægri netáhættu úr aukinni (e. elevated) í alvarlega (e. severe).

Seðlabanki Íslands hefur áður vakið athygli á þessari þróun í dreifibréfi til eftirlitsskyldra aðila og telur mikilvægt að aðilar á fjármálamarkaði taki mið af viðvörun ESRB og meti áhrif þróunarinnar á eigin starfsemi. Þá birti Seðlabankinn í júníbyrjun rit um viðbúnað fjármálakerfisins við alvarlegum rekstrartruflunum (sérrit nr. 21), þar sem leitast er við að skýra hvaða þjónustur og innviðir eru mikilvæg fyrir nauðsynlega fjármálaþjónustu, hvernig tengsl þeirra geta magnað áhættu og valdið keðjuverkandi áhrifum og hvaða viðmið eigi að liggja til grundvallar raunhæfum viðbúnaði.

Þótt þróunin geti til lengri tíma styrkt varnir og stafrænan viðnámsþrótt telur ESRB að hún geti til skemmri og meðallangs tíma veitt árásaraðilum forskot. Af þeim sökum er mikilvægt að fjármálafyrirtæki og aðrir lykilaðilar í fjármálakerfinu fylgist grannt með þróuninni og grípi til viðeigandi ráðstafana til að viðhalda stafrænum viðnámsþrótti.

Nánari upplýsingar má finna í viðvörun ESRB og fyrra dreifibréfi Seðlabanka Íslands um áhrif þróunar gervigreindar á netöryggi aðila á fjármálamarkaði. Sjá nánar í meðfylgjandi tenglum:

Hlekkur á frétt ESRB: Frontier AI models could strain cyber resilience in the financial system, ESRB warns

Hlekkur á viðvörun ESRB: Warning of the European Systemic Risk Board of 25 June 2026 on systemic cyber risks stemming from frontier artificial intelligence models (ESRB/2026/3)
Hlekkur á dreifibréf: Áhrif þróunar gervigreindar á netöryggi aðila á fjármálamarkaði.docx

Hlekkur á frétt: Seðlabanki Íslands | Seðlabanki Íslands varar fjármálamarkað við þróun gervigreindar og áhrifum á netöryggi

Sjá einnig: Sérrit nr. 21: Viðbúnaður fjármálakerfisins við alvarlegum rekstrartruflunum