Fara beint í Meginmál

Vefútsending vegna yfirlýsingar fjármálastöðugleikanefndar 25. mars 2026 24. mars 2026

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands verður birt kl. 8:30, miðvikudaginn 25. mars 2026. Ritið Fjármálastöðugleiki verður birt á vef bankans klukkan 8:35.

Vefútsending frá kynningu vegna yfirlýsingar nefndarinnar og útgáfu Fjármálastöðugleika hefst kl. 9:30. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, og Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs, munu gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og efni Fjármálastöðugleika.

Nánari upplýsingar um fjármálastöðugleikanefnd má finna á sérstakri síðu, sjá hér: Fjármálastöðugleikanefnd

Hér má finna tengla á útgefin rit: Rit og skýrslur

Seðlabankinn ábyrgist ekki hnökra sem kunna að koma upp í útsendingu.