Meginmál

Vefútsending vegna yfirlýsingar peningastefnunefndar og útgáfu peningamála 21. maí 2025

Yfirlýsing peningastefnunefndar verður birt á vef Seðlabanka Íslands á morgun, miðvikudaginn 21. maí 2025 kl. 8.30. Ritið Peningamál verður birt á vefnum kl. 8.35. Vefútsending með kynningu á yfirlýsingu nefndarinnar hefst klukkan 9:30.

Á kynningunni gera Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála.

Hér eru nánari upplýsingar um peningastefnu: Peningastefna.

Hér má finna tengla í útgefin rit, m.a. Peningamál: Rit og skýrslur.

Vefútsending er aðgengileg hér fyrir neðan.