Fjármálakerfið hér á landi er traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt.
Alþjóðlegar verðbólguhorfur hafa versnað og seðlabankar helstu iðnríkja hækkað vexti. Áhyggjur af sjálfbærni opinberra fjármála hafa aukist, langtímavextir ríkisskuldabréfa hækkað skarpt og skapað umrót á fjármálamörkuðum.
Hér á landi hafa óverðtryggðir vextir lengri ríkisskuldabréfa ekki hækkað að sama marki og gengi krónunnar haldist tiltölulega stöðugt, m.a. vegna mikils þjóðhagslegs sparnaðar og hóflegrar skuldsetningar þjóðarbúsins. Alþjóðlegur óróleiki, viðvarandi verðbólga og háir vextir hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum geta reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins.
Aukinn kaupmáttur og lítið atvinnuleysi hafa stutt við efnahag heimila síðustu ár. Lánþegaskilyrði hafa styrkt viðnámsþrótt heimila, skuldahlutföll þeirra eru almennt lág og vanskil lítil. Skýr merki eru þó um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif samhliða háum vöxtum. Húsnæðisverð hefur lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu fjölgað og sölutími lengst, sérstaklega á nýjum íbúðum. Þessi þróun getur reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil í greininni.
Framþróun gervigreindar getur aukið hraða, umfang og flækjustig netárása. Brýnt er að aðilar á fjármálamarkaði efli varnir í takt við þróun netógna. Mikilvægt er að styrkja áfram viðnámsþrótt og samhæfa viðbúnað innan fjármálakerfisins við alvarlegum rekstraratvikum. Nú þegar er komin til framkvæmdar notkun greiðslukorta í netleysi sem er þýðingarmikill þáttur í viðnámsþrótti greiðslumiðlunar.
Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.
Frétt nr. 9/2026
23. september 2026