Fara beint í Meginmál

Yfirlýsing peningastefnunefndar 20. ágúst 2025

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 7,50%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Verðbólga var 4% í júlí og minnkaði um 0,2 prósentur frá mánuðinum á undan. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans eykst hún aftur á næstu mánuðum en tekur síðan að hjaðna er kemur fram á næsta ár. Óvissa um verðbólguhorfur er þó áfram mikil.

Hægt hefur á vexti innlendrar eftirspurnar í takt við þétt taumhald peningastefnunnar. Spennan í þjóðarbúinu hefur því minnkað eins og sjá má á hægari umsvifum á húsnæðis- og vinnumarkaði. Enn virðist þó vera nokkur þróttur í efnahagsumsvifum, laun hafa hækkað mikið og verðbólguvæntingar mælast enn yfir markmiði.

Þótt verðbólga hafi hjaðnað og verðbólguvæntingar lækkað síðustu misseri er enn nokkur verðbólguþrýstingur til staðar. Þær aðstæður hafa því ekki skapast að hægt sé að slaka á núverandi raunvaxtaaðhaldi peningastefnunnar. Ljóst er að frekari skref til lækkunar vaxta eru háð því að verðbólga færist nær 2½% markmiði bankans.

Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Frétt nr. 12/2025
20. ágúst 2025

Vextir verða því sem hér segir:

  1. Daglán 9,25%
  2. Lán gegn veði til 7 daga 8,25%
  3. Innlán bundin í 7 daga 7,50%
  4. Viðskiptareikningar 7,25%

Sjá nánar:

Tengdar greinar