Fara beint í Meginmál

Gjaldeyrisþörf ríkissjóðs og hlutverk Seðlabankans sem viðskiptabanki ríkissjóðs

Seðlabanki Íslands hóf reglubundin gjaldeyriskaup af viðskiptavökum í maí 2026. Meginmarkmið kaupanna er að mæta tilfallandi gjaldeyrisþörf ríkissjóðs og viðhalda þannig stærð gjaldeyrisforða bankans. En hvers vegna þarf Seðlabankinn að kaupa gjaldeyri fyrir hönd ríkissjóðs og hvert er hlutverk bankans í þeim viðskiptum?

Seðlabankinn er banki ríkissjóðs og varðveitir gjaldeyrisforða

Seðlabanki Íslands veitir ríkissjóði fjölbreytta bankaþjónustu og gegnir að ýmsu leyti sambærilegu hlutverki og viðskiptabankar gera fyrir stóra viðskiptavini. Ríkissjóður tekur ákvarðanir um ráðstöfun eigin fjármuna og fjárstýringu en Seðlabankinn annast gjaldeyrisviðskipti fyrir ríkissjóð í samræmi við lög, fyrirmæli og samkomulag aðila. Þá á ríkissjóður innstæður á reikningum í Seðlabankanum í bæði íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum. Seðlabankanum er óheimilt samkvæmt lögum að lána ríkissjóði eða að fjármagna hann með öðrum hætti enda myndi það samsvara peningaprentun og ávísun á aukna verðbólgu. Stærstur hluti tekna og gjalda ríkissjóðs er í íslenskum krónum en þó er umfang erlendra tekna og útgjalda á hverju ári einnig talsvert. Að jafnaði hafa erlend útgjöld ríkissjóðs verið meiri en erlendar tekjur. Til að mæta því er ríkissjóður kaupandi að erlendum gjaldeyri í skiptum fyrir íslenskar krónur. Gjaldeyrisviðskipti ríkissjóðs fara að mestu fram við Seðlabankann en ríkissjóður getur líka átt í beinum gjaldeyrisviðskiptum við viðskiptabanka.

Bankaþjónusta Seðlabankans fyrir ríkissjóð byggir á lögum 92/2019 og er hún því eitt af lögbundnum hlutverkum bankans. [1] Gjaldeyrisviðskipti eru hluti af þeirri þjónustu og skal bankinn einnig vera ríkisstjórn til ráðuneytis um allt sem varðar gjaldeyrismál, þar á meðal erlendar lántökur og framkvæmd í þeim efnum eftir samkomulagi. Í 27. gr. laganna er kveðið á um heimildir Seðlabankans til viðskipta með erlendan gjaldeyri og til að hafa milligöngu um gjaldeyrisviðskipti. Þá er það jafnframt hlutverk bankans samkvæmt 30. gr. laganna að varðveita gjaldeyrisforða landsins. Gjaldeyrisforðinn gegnir veigamiklu hlutverki í að stuðla að stöðugleika og viðnámsþrótti þjóðarbúsins. Seðlabankinn metur reglulega æskilega stærð hans og tekur sjálfstæðar ákvarðanir um stýringu og varðveislu gjaldeyrisforðans.

Framkvæmd gjaldeyrisviðskipta ríkissjóðs

Þegar ríkissjóður kaupir gjaldeyri í skiptum fyrir íslenskar krónur af Seðlabankanum til að standa straum af erlendum kostnaði þá dregur Seðlabankinn íslenskar krónur af reikningi ríkissjóðs. Innstæður ríkissjóðs í krónum hjá Seðlabankanum minnka sem því nemur og gjaldeyrisforði bankans minnkar við sölu gjaldeyris til ríkissjóðs. Erlend útgjöld og gjaldeyrisviðskipti ríkissjóðs við Seðlabankann hafa því bein áhrif á stærð gjaldeyrisforða og efnahagsreikning Seðlabankans ef ekkert er að gert.

Í lok október 2026 átti ríkissjóður gjaldeyrisinnstæður á reikningum í Seðlabankanum að jafnvirði um 300 ma.kr. Sú fjárhæð samsvarar um þriðjungi gjaldeyrisforðans. Innstæðurnar eru tilkomnar vegna erlendrar skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs, sem er beinlínis ætlað að styrkja gjaldeyrisforðann. Meginviðmiðið er að erlendar innstæður ríkissjóðs séu aðeins nýttar til að greiða afborganir og höfuðstólsgreiðslur vegna skuldabréfanna en ekki annan almennan erlendan kostnað. Á þessu meginviðmiði hafa þó verið undantekningar sem hafa haft talsverð áhrif á gjaldmiðlamisvægi ríkissjóðs og stærð gjaldeyrisforðans. Gjaldmiðlamisvægið má meðal annars rekja til þess að erlendar innstæður ríkissjóðs voru nýttar til uppgjörs ÍL-sjóðs árið 2025.

Í fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 kemur fram að gert er ráð fyrir að ríkissjóður kaupi árlega gjaldeyri fyrir 12 ma.kr. til að draga úr um 106 ma.kr. misvægi á milli peningalegra eigna og skulda ríkissjóðs í erlendum gjaldeyri.

Hvaða gjöld ríkissjóðs eru í erlendum gjaldeyri?

Líkt og sjá má af ríkisreikningi, fjárlögum og stefnu í lánamálum ríkisins, má skipta gjaldeyrisútgjöldum ríkissjóðs í þrjá meginflokka:

  1. Rekstur sendiráða og alþjóðlegar skuldbindingar: Utanríkisþjónusta og alþjóðasamstarf bera fastan gjaldeyriskostnað vegna starfsemi Íslands á alþjóðavettvangi. Um er að ræða rekstur sendiráða og fastanefnda, félagsgjöld í alþjóðastofnunum sem og þróunar- og mannúðaraðstoð.
  2. Bein vöru- og þjónustukaup erlendis: Ríkisstofnanir þurfa oft að kaupa sérhæfða vöru og þjónustu frá erlendum birgjum eins og tækjabúnað (t.d. tæki á heilbrigðisstofnanir, hugbúnaðarleyfi og slíkt), kaup á þyrlum og skipum og svo kaup á erlendri sérfræðiþjónustu.
  3. Afborganir og vexti af erlendum lánum: Ríkissjóður gefur út skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum, bæði á alþjóðlegum mörkuðum með það markmið að efla gjaldeyrisforðann en einnig hefur hann gefið út ómarkaðshæf skuldabréf í öðrum tilgangi. Skuldabréfin bera vexti og afborganir í erlendum gjaldmiðlum sem ríkissjóður þarf að greiða.

Til viðbótar ofangreindu getur jafnframt komið til endurgreiðslu á virðisaukaskatti í erlendum gjaldeyri til erlendra fyrirtækja sem ekki hafa búsetu eða fasta starfsstöð á Íslandi.

Gjaldeyrisþörf ríkissjóðs ræðst þó ekki eingöngu af umfangi erlendra útgjalda hverju sinni. Við fjárstýringu ríkissjóðs þarf einnig að líta til tekna, eigna og skulda hans í erlendum gjaldmiðlum og hvernig þeim er ráðstafað. Ákvörðun um hvort gjaldeyristekjum sé skipt í krónur eða þær varðveittar í erlendum gjaldeyri getur þannig haft áhrif á nettó gjaldeyrisþörf ríkissjóðs og þróun gjaldmiðlamisvægis hans.

Tekjur ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðlum koma helst til vegna arðgreiðslna fyrirtækja í hans eigu, ekki síst Landsvirkjunar. Gjaldeyristekjur sem ríkissjóður skiptir í íslenskar krónur selur hann til Seðlabankans. Að jafnaði kaupir ríkissjóður meiri gjaldeyri af Seðlabankanum en hann selur. Reglulegum gjaldeyriskaupum Seðlabankans er ætlað að mæta þessari nettó gjaldeyrisþörf ríkissjóðs með það að markmiði að jafna sveiflur í erlendum tekjum og útgjöldum ríkissjóðs og lágmarka áhrif hans á gjaldeyrismarkaðinn.

Að meðaltali námu hrein árleg gjaldeyriskaup ríkissjóðs af Seðlabankanum um 16 ma.kr. árin 2020-2025. Fjárhæðirnar eru ólíkar á milli ára en sum ár hafa tekjur ríkissjóðs í erlendum gjaldeyri dugað fyrir útgjöldum en önnur ár hafa kaupin verið nær 30 ma.kr. Í ár hafa erlend útgjöld ríkissjóðs verið óvenju mikil, meðal annars vegna afborgana og greiðslna af ómarkaðshæfum skuldabréfum í erlendum gjaldmiðlum.

Reglubundin gjaldeyriskaup Seðlabankans

Seðlabankinn hefur mörg undanfarin ár, með mislöngum hléum, átt reglubundin gjaldeyriskaup á millibankamarkaði með gjaldeyri. Tilgangur viðskiptanna síðastliðin tvö ár hefur fyrst og fremst verið að mæta gjaldeyrisþörf ríkissjóðs og viðhalda þar með stærð gjaldeyrisforðans. Viðskiptin eru framkvæmd við opnun gjaldeyrismarkaðarins, klukkan 9:15 á fyrirfram tilkynntum dögum. Með því að dreifa gjaldeyriskaupunum yfir lengri tímabil og tilkynna framkvæmdina fyrirfram er leitast við að mæta áætlaðri nettó gjaldeyrisþörf ríkissjóðs með fyrirsjáanlegum hætti og lágmarka áhrif einstakra viðskipta á gjaldeyrismarkaðinn. Reglubundnu viðskiptin eru því eðlisólík gjaldeyrisviðskiptum sem framkvæmd eru í samræmi við inngripastefnu Seðlabankans, [2] sem er beinlínis ætlað að hafa áhrif á gengið eða til að takmarka óhóflegar skammtíma sveiflur í gengi krónunnar vegna grunns markaðar.

Þegar kaupin hófust í maí síðastliðnum voru keyptar 6 milljónir evra á viku. Í september voru kaupin aukin í 12 milljónir evra á viku þar sem gjaldeyrisþörf ríkissjóðs reyndist meiri en áður hafði verið áætlað. Í október var svo ákveðið að minnka fjárhæðina aftur í 6 milljónir evra á viku.

Myndin lýsir öllu ferlinu í skrefum frá framkvæmd gjaldeyrisviðskipta Seðlabankans við ríkissjóð, þ.e. hvernig kaup bankans á markaði mæta útflæði úr gjaldeyrisforða og viðhalda stærð hans.

Hvernig er gjaldeyrisviðskiptum ríkissjóða háttað erlendis?

Erlendir seðlabankar sinna margir hverjir gjaldeyrisviðskiptum fyrir ríkissjóð með sambærilegum hætti og Seðlabanki Íslands. Fyrirkomulagið á útfærslu gjaldeyrisviðskiptanna er þó ólíkt milli landa, en viðskipti seðlabanka Noregs og Ástralíu geta verið áhugaverð samanburðardæmi fyrir Ísland. Tilgangur gjaldeyrisviðskiptanna og gagnsæi við framkvæmd þeirra skiptir þar höfuðmáli. Grunnhugmyndin er alla jafna sú að greina á milli annars vegar viðskipta fyrir hönd ríkissjóðs sem eru yfirleitt útfærð með það í huga að hafa sem minnst áhrif á gengi gjaldmiðils og hins vegar inngripa sem er beinlínis ætlað að hafa áhrif á gengi gjaldmiðilsins.

Noregur - reglubundin viðskipti fyrir hönd ríkisins

Seðlabanki Noregs framkvæmir reglulega gjaldeyrisviðskipti fyrir hönd norska ríkisins og birtir fyrirfram upplýsingar um mánaðarlegt umfang þeirra.

Fyrirkomulagið í Noregi tengist meðal annars tekjum af orkusölu, en ríkið fær tekjur bæði í norskum krónum og erlendum gjaldmiðlum. Hluti teknanna er nýttur til að fjármagna útgjöld ríkissjóðs, sem eru í norskum krónum, en það sem eftir stendur fer í norska olíusjóðinn (e. Government Pension Fund Global) sem fjárfestir erlendis. Hvort bankinn kaupir eða selur gjaldeyri fer eftir fjármagnsflæði til ríkisins hverju sinni, þ.e. hvort arð- og skattgreiðslur í norskum krónum séu meiri eða minni en þörf ríkissjóðs vegna útgjalda.

Bankinn tilkynnir reglulega fyrirfram umfang viðskiptanna sem getur verið breytilegt yfir tíma. Í janúar 2026 seldi Noregsbanki t.d. gjaldeyri fyrir 650 m. norskra króna á dag fyrir hönd ríkisins. Í júlí voru seldar 400 m. norskra króna á dag, en í september 2026 tilkynnti bankinn að hann myndi kaupa erlendan gjaldeyri fyrir jafnvirði 300 m. norskra króna á dag fyrir hönd ríkisins. Samhliða voru önnur viðskipti bankans í gagnstæða átt, sem tengist arðgreiðslu Noregsbanka til ríkissjóðs, þannig að nettókaup gjaldeyris bankans í mánuðinum voru lægri.

Ástralía - gjaldeyrir ríkissjóðs keyptur aftur á markaði

Seðlabanki Ástralíu veitir ástralska ríkinu gjaldeyrisþjónustu og samkvæmt stefnu bankans selur hann ríkissjóði gjaldeyri þegar á þarf að halda og við eðlilegar markaðsaðstæður kaupir bankinn síðan samsvarandi fjárhæð aftur á gjaldeyrismarkaði. Með því eru áhrif viðskipta ríkissjóðs á gjaldeyrisforða bankans takmörkuð.

Bankinn tekur jafnframt fram að þessi viðskipti á markaðnum séu framkvæmd með það að markmiði að lágmarka áhrif þeirra á gengi, þau velti á markaðsaðstæðum og bankinn geti tímabundið mætt þörf ríkisins úr fyrirliggjandi forða ef aðstæður eru metnar óhagstæðar og endurnýjað hann þegar þær hafa batnað.

Bretland og Kanada

Fleiri dæmi má finna erlendis. Englandsbanki starfar í umboði breska ríkissjóðsins við daglega umsýslu gjaldeyrisjafnaðarreiknings (e. Exchange Equalisation Account), þar sem opinber gjaldeyriseign Bretlands er að stórum hluta varðveitt. Bankinn annast jafnframt gjaldeyrisviðskipti og stýringu gjaldeyrisskuldbindinga fyrir hönd ríkissjóðs. Seðlabanki Kanada gegnir sambærilegu hlutverki gagnvart ríkissjóði Kanada, þar á meðal sem banki og fjárstýringaraðili ríkisins og við umsýslu gjaldeyrisforða Kanada. Grunnhugmyndin er sú sama og hér á landi.

Hefðbundið verkefni seðlabanka

Seðlabankinn er banki ríkissjóðs og annast meðal annars gjaldeyrisviðskipti fyrir hann vegna erlendra greiðslna. Gjaldeyriskaup ríkissjóðs hafa undanfarin ár minnkað gjaldeyrisforðann en varðveisla gjaldeyrisforðans er eitt af lögbundnum hlutverkum bankans. Seðlabankanum ber því að gera ráðstafanir til að tryggja að hann sé nægjanlega stór hverju sinni. Áætlun Seðlabankans um reglubundin gjaldeyriskaup Seðlabankans tekur mið af gjaldeyrisþörf ríkissjóðs og er markmiðið að viðhalda stærð gjaldeyrisforðans. Kaupin eru þannig liður í hefðbundinni starfsemi Seðlabankans og styðja við lögbundið hlutverk hans að stuðla að stöðugleika og viðnámsþrótti þjóðarbúsins, samhliða því að veita ríkissjóði nauðsynlega bankaþjónustu. Gjaldeyriskaupin eru því útfærð með það að leiðarljósi að jafna yfir tíma sveiflur í erlendum tekjum og útgjöldum ríkissjóðs til að lágmarka áhrif gjaldeyrisviðskipta ríkissjóðs á gjaldeyrismarkaðinn.