Fara beint í Meginmál

Til eru mörg hugtök sem notuð eru í daglegu tali um fjárfestingarkosti, s.s. verðbréf, hlutabréf og skuldabréf. Regnhlífarhugtakið er fjármálagerningur, en til eru lög um markaði fyrir fjármálagerninga sem setja ramma utan um viðskipti með þær tegundir fjárfestinga sem falla undir hugtakið. Hér er stiklað á stóru um helstu tegundir fjármálagerninga og þær útskýrðar.

Hlutabréf

  • Hlutabréf er staðfesting hluthafa á eignarhlut í hlutafélagi.
  • Hluthafi nýtur réttinda samkvæmt lögum og samþykktum hlutafélagsins.
  • Hluthafar geta fengið greiddan arð af hlutabréfum, sem oftast er nefnd ávöxtun eigin fjár.
  • Virði hlutabréfa getur hækkað eða lækkað.
  • Við gjaldþrot hlutafélags getur allt hlutafé tapast.
  • Fjárfesting í hlutabréfum getur verið áhættusöm.
  • Verðsveiflur þ.e. sveiflur á gengi hlutabréfa endurspegla áhættu hlutabréfs.
  • Hluthafar eru aftastir í kröfuröð ef hlutafélag verður gjaldþrota, því getur allt hlutafé tapast ef eignir eru ekki nægar til að greiða öllum kröfuhöfum. Hlutabréf geta því orðið verðlaus.
  • Hlutabréf sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum markaði, þ.e. skráð í kauphöll, eru skráð rafrænt í verðbréfamiðstöð.
  • Útgefandi skráðra hlutabréfa (hlutafélagið) þarf að uppfylla ítarlegar kröfur um upplýsingaskyldu.
  • Upplýsingaskylda útgefenda á að tryggja jafnræði fjárfesta þannig að allir fjárfestar búi yfir sömu upplýsingum á sama tíma og geti tekið upplýsta ákvörðun um viðskipti með hlutabréfin.
  • Verðbil, þ.e. munur á kaup- og sölugengi (e. spread) skráðra hlutabréfa gefur til kynna hversu mikil viðskipti eru með hlutabréfin. Mikill munur á kaup- og sölugengi (þ.e. vítt verðbil) gefur til kynna að seljanleiki hlutabréfanna sé lítill og meiri hætta sé á að einstök viðskipti hafi áhrif á verð þeirra.
  • Vítt verðbil gefur vísbendingu um að verðsveiflur geti verið miklar. Skammtímafjárfestar velja því frekar að eiga viðskipti með hlutabréf sem hafa þröngt verðbil.
  • Til þess að auka seljanleika hlutabréfa og stuðla að skilvirkari verðmyndun geta útgefendur gert samning við viðskiptavaka um að kaupa og selja tiltekið magn hlutabréfa á gengi sem hefur fyrirfram ákveðið frávik frá síðasta viðskiptaverði. Í upplýsingaveitum kauphalla er hægt að nálgast upplýsingar um hvort viðskiptavakt er með hlutabréf.
  • Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með upplýsingaskyldu útgefenda fjármálagerninga sem hafa verið teknir til viðskipta á skipulegum markaði.
  • Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með starfsemi kauphalla, skipulagðra markaða, markaðstorgum fjármálagerninga og verðbréfamiðstöðvum.
  • Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með viðskiptum á markaði.
  • Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með því að fjármálafyrirtæki starfi í samræmi við reglur nr. 353/2022 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti, samskipti við viðskiptavini og meðhöndlun kvartana. 
  • Seðlabanki Íslands tekur við ábendingum fjárfesta ef starfshættir verðbréfafyrirtækja eru ekki í samræmi við lög og reglur. Hægt er að senda ábendingu eða fyrirspurn hér.
  • Seðlabanki Íslands bendir á upplýsingar á vefnum um úrræði neytenda, en hann leiðbeinir neytendum að öðru leyti um úrræði sem þeir hafa til að ná fram rétti sínum. Hér má nálgast verklagsreglur fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirspurna og ábendinga.
  • Seðlabanki Íslands hefur ekki úrskurðarvald í einstökum ágreiningsmálum eða sker úr um réttindi eða skyldur aðila að einkarétti eða ágreiningi um sönnun málsatvika.

Skuldabréf

  • Skuldabréf er viðurkenning útgefanda skuldabréfsins á því að honum beri skylda til að endurgreiða tiltekna fjárhæð, á fyrirframtilgreindum tíma með fyrirframtilgreindum vöxtum til eiganda eða handhafa skuldabréfsins.
  • Til eru ýmsar tegundir skuldabréfa, þau geta t.d. verið verðtryggð eða óverðtryggð með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum.
  • Ef skuldabréf er verðtryggt þá breytast eftirstöðvar höfuðstólsins til samræmis við fyrirframákveðna vísitölu t.d. vísitölu neysluverðs (VNV).
  • Ef skuldabréf er óverðtryggt lækkar höfuðstóllinn sem nemur afborgun af honum og fylgir því ekki verðbólguþróun.
  • Skuldabréf bera vexti sem geta verið fastir eða breytilegir. Með föstum vöxtum er samið um vexti til lokagjalddaga skuldabréfsins. Með breytilegum vöxtum er samið um að vextir hækki eða lækki til samræmis við vaxtaþróun á fjármálamarkaði sem miðast yfirleitt við stýrivexti seðlabanka.
  • Til eru ótalmargar tegundir skuldabréfa og geta þau til dæmis verið háð undirliggjandi þáttum. Slík skuldabréf teljast til flókinna fjármálagerninga og almennum fjárfestum er ráðlagt að fjárfesta ekki í slíkum skuldabréfum.  
  • Almennir fjárfestar sem hyggjast fjárfesta í skuldabréfum þurfa að huga að því hvert markmið fjárfestingarinnar er, til hversu langs tíma hún er gerð og hversu mikla áhættu viðkomandi er tilbúinn að taka.
  • Ríkisskuldabréf eru talin áhættuminnstu skuldabréfin.
  • Mikilvægt er að átta sig á því að verð skuldabréfa sveiflast eftir markaðsaðstæðum.
  • Gott er að leita ráðgjafar hjá bönkum eða verðbréfafyrirtækjum áður en fjárfest er í skuldabréfum
  • Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með upplýsingaskyldu útgefenda fjármálagerninga sem hafa verið teknir til viðskipta á skipulegum markaði.
  • Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með starfsemi kauphalla, skipulagðra markaða, markaðstorgum fjármálagerninga og verðbréfamiðstöðvum.
  • Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með viðskiptum á markaði.
  • Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með því að fjármálafyrirtæki starfi í samræmi við reglur nr. 353/2022 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti, samskipti við viðskiptavini og meðhöndlun kvartana. 
  • Seðlabanki Íslands tekur við ábendingum fjárfesta ef starfshættir verðbréfafyrirtækja eru ekki í samræmi við lög og reglur. Hægt er að senda ábendingu eða fyrirspurn hér.
  • Seðlabanki Íslands bendir á upplýsingar á vefnum um úrræði neytenda, en hann leiðbeinir neytendum að öðru leyti um úrræði sem þeir hafa til að ná fram rétti sínum. Hér má nálgast verklagsreglur fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirspurna og ábendinga.
  • Seðlabanki Íslands hefur ekki úrskurðarvald í einstökum ágreiningsmálum eða sker úr um réttindi eða skyldur aðila að einkarétti eða ágreiningi um sönnun málsatvika.

Sjóðir

  • Til að mæta óvæntum útgjöldum er mikilvægt að eiga varasjóð. Öruggasta sparnaðarleiðin er að leggja fjármuni inn á bankareikninga en þeir hafa alla jafna lægri ávöxtun en aðrar sparnaðarleiðir s.s. verðbréfasjóðir eða verðbréf. Verðbréfaviðskiptum getur fylgt áhætta sem mikilvægt er að þekkja. 
  • Meðal þeirra sjóða sem almenningur getur fjárfest í eru verðbréfasjóðir (e. UCITS) og sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta (e. Retail AIFs).
  • Sjóðir taka við fé frá fjárfestum til sameiginlegrar fjárfestingar í samræmi við fyrir fram ákveðna fjárfestingarstefnu og fjárfestingarheimildir sjóðsins, til dæmis í hlutabréfum, skuldabréfum, innlánum eða öðrum seljanlegum eignum.
  • Við kaup í sjóði eignast þú hlutdeildarskírteini sem sannar eignarhald í viðkomandi sjóð. Þú átt þá hlutdeild í sjóðnum, en ekki þær eignir sem sjóðurinn fjárfestir í með beinum hætti. Virði hlutdeildarinnar hækkar eða lækkar eftir því hvernig eignir sjóðsins þróast.

Fjárfesting í sjóðum getur verið einföld leið til að dreifa áhættu, en hún er ekki áhættulaus.  

Áður en þú kaupir í sjóði ætti meðal annars að skoða eftirfarandi atriði: 

  • Lykilupplýsingaskjal: Þar eru teknar saman helstu upplýsingar um sjóðinn, þ.m.t. áhættu, kostnað, ráðlagðan eignarhaldstíma og eðli hennar. Skjalið auðveldar þér að skilja og bera saman mismunandi fjárfestingarafurðir.
  • Útboðslýsing: Mikilvægt er að kynna sér útboðslýsingu sjóðs en þar eru veittar ítarlegar upplýsingar um sjóðinn og rekstraraðila hans. Þar má einnig finna reglur sjóðsins.
  • Rekstrarfélag/aðili og staðsetning: Hver rekur sjóðinn og hvar hefur hann starfsleyfi? Kynntu þér í hvaða landi sjóðurinn hefur staðfestu, hvort staðsetningin hafi sérstök skattaleg áhrif og hvaða eftirliti hann lýtur. Hvaða reglur gilda ef hann er utan EES?
  • Kostnaður: Umsýsluþóknun, viðvarandi kostnaður, kaup- og sölukostnaður og árangurstengdar þóknanir geta haft veruleg áhrif á ávöxtun. Reiknaðu uppsöfnuð áhrif kostnaðar vörunnar á ávöxtun miðað við fyrirhugaðan fjárfestingartíma þinn.
  • Fjárfestingarstefna: Í hverju fjárfestir sjóðurinn? Fjárfestir hann í hlutabréfum, skuldabréfum, innlánum, erlendum eignum eða blöndu eigna? Er eignastýringin virk (sjóðsstjóri tekur ákvörðun um fjárfestingar) eða óvirk (fjárfest í samræmi við tiltekna aðferðarfræði, s.s. að fylgja vísitölu). Áhættan fer eftir því í hverju sjóðurinn fjárfestir, því geta sjóðir verið með fjárfestingarstefnur sem eru áhættufælnar eða áhættusæknar.
  • Áhættuvísir: Í lykilupplýsingaskjali er áhættuvísir sjóðsins metinn á bilinu 1-7, þar sem 1 táknar lægsta áhættuflokkinn og 7 hæsta áhættuflokkinn. Áhættuvísirinn byggist meðal annars á mati á markaðsáhættu og eftir atvikum útlánaáhættu, og gefur vísbendingu um sveiflur á gengi sjóðsins yfir ákveðið tímabil. Hann tekur þó ekki til allra áhættuþátta og lágur áhættuvísir þýðir ekki að fjárfestingin er áhættulaus.
  • Seljanleiki og innlausn: Hversu fljótt getur þú selt hlutdeildina og fengið greitt? Mikilvægt er að kynna sér hversu langur innlausnarfrestur sjóðsins er og hvort takmarkanir gilda um innlausn.
  • Ráðlagður fjárfestingartími: Hversu lengi er ráðlagt að eiga hlutdeild í sjóðnum? Skoða hvort sá tími samræmist þínum fjárhagslegu markmiðum.
  • Gjaldmiðill: Fjárfestingar í erlendum eignum geta falið í sér gjaldeyrisáhættu. Breytingar á gengi gjaldmiðla geta haft áhrif á ávöxtun þína, jafnvel þótt verðmæti undirliggjandi eigna breytist ekki.
  • Samanburður: Berðu saman sjóði með sambærilega fjárfestingarstefnu og skoðaðu sérstaklega áhættu, kostnað, ávöxtun og innlausnarskilmála. 

Kostnaður skiptir miklu máli. Athugaðu að jafnvel lítill munur á gjöldum getur haft mikil áhrif á ávöxtun yfir tíma.

Á vef Seðlabanka Íslands má finna lista yfir verðbréfasjóði og sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta sem hafa hlotið staðfestingu fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands til markaðssetningar fyrir almenna fjárfesta.  

  • Rekstrarfélög verðbréfasjóða stýra verðbréfasjóðum. Um verðbréfasjóði gilda lög nr. 116/2021 um verðbréfasjóði.
  • Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta eru hlutdeildarsjóðir sem hafa hlotið staðfestingu fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og lúta fjárfestingarheimildum samkvæmt X. kafla laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.  
  • Heitið „fyrir almenna fjárfesta“ þýðir ekki að sjóðurinn sé áhættulítill. Það þýðir að heimilt er að markaðssetja hann til almennra fjárfesta að uppfylltum skilyrðum laga. Slíkir sjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir en verðbréfasjóðir samkvæmt lögum og geta því verið áhættusamari, en lúta þó einnig eigin fjárfestingarstefnu og reglum. 

Þar sem sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta hafa rýmri fjárfestingarheimildir en verðbréfasjóðir geta þeir falið í sér meiri áhættu og kalla því á nánari athugun en einfaldari sjóðir. Áhætta, kostnaður og skilmálar eru þó mismunandi eftir sjóðum.  

Áður en þú fjárfestir er mikilvægt að kynna þér eftirfarandi:  

  • Í hverju má sjóðurinn fjárfesta? Kynntu þér fjárfestingarstefnu sjóðsins. Getur hann fjárfest í óskráðum eignum, afleiðum, öðrum sérhæfðum sjóðum eða öðrum flóknari eignum?
  • Hvenær er hægt að innleysa?  Innlausn hlutdeildarskírteina getur verið háð allt að þriggja mánaða fyrirvara. Mikilvægt er að kynna sér vel innlausnarreglur sjóðsins áður en þú fjárfestir.
  • Hversu dreifðar eru eignirnar? Ef stór hluti eigna sjóðsins er bundinn í fáum fjárfestingum getur það aukið áhættu.
  • Er skuldsetning eða vogun notuð? Lántökur og notkun afleiðna geta aukið áhættu og mögulegt tap. Afleiður geta þó einnig verið notaðar til að draga úr áhættu.
  • Hvernig er virði eigna metið? Erfitt getur verið að verðmeta óskráð eða lítt seljanleg verðbréf.
  • Hver er ráðlagður fjárfestingartími? Leggja skal mat á hvort þú getur verið án fjármunanna í að minnsta kosti þann tíma sem mælt er með. Sérhæfðir sjóðir geta hentað illa ef þú þarft að geta nálgast féð með stuttum fyrirvara. 

Góð regla er að bera sérhæfðan sjóð saman við hefðbundinn verðbréfasjóð og spyrja: Er ég að taka viðbótaráhættu, og ef svo er, hvaða ávinning fæ ég mögulega í staðinn? 

  • Seðlabanki Íslands veitir rekstrarfélögum verðbréfasjóða og rekstraraðilum sérhæfðra sjóða starfsleyfi og hefur eftirlit með að starfsemi þeirra sé í samræmi við gildandi lög og reglur. 
  • Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með því að fjármálafyrirtæki starfi í samræmi við reglur nr. 353/2022 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti, samskipti við viðskiptavini og meðhöndlun kvartana. 
  • Seðlabanki Íslands tekur við ábendingum neytenda ef starfshættir eftirlitsskyldra aðila eru ekki í samræmi við lög og reglur. Hér er hægt er að senda ábendingu eða fyrirspurn. 
  • Seðlabanki Íslands bendir á upplýsingar á vefnum um úrræði neytenda, en hann leiðbeinir neytendum að öðru leyti um úrræði sem þeir hafa til að ná fram rétti sínum. Hér má nálgast verklagsreglur fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirspurna og ábendinga. 
  • Seðlabanki Íslands hefur ekki úrskurðarvald í einstökum ágreiningsmálum eða sker úr um réttindi eða skyldur aðila að einkarétti eða ágreiningi um sönnun málsatvika.