Fara beint í Meginmál
7003 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Fjármálaeftirlit
24. júní 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hóf með bréfi, dags. 3. apríl 2025, athugun á verklagi við úrvinnslu, skráningu og vöktun svika hjá Rapyd Europe hf. Niðurstaða athugunarinnar lá fyrir í maí 2026.

Fjármálaeftirlit
24. júní 2026

Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitið (ESMA) skorar á þjónustuveitendur sýndareigna (CASP) sem ekki hafa fengið viðeigandi starfsleyfi, að hætta starfsemi sinni innan ESB þegar aðlögunartímabili MiCA-reglugerðarinnar lýkur hinn 1. júlí 2026.

Fjármálaeftirlit
24. júní 2026

Í tengslum við innleiðingu kerfis um einn evrópskan aðgangsstað (ESAP) vill Seðlabanki Íslands vekja athygli á því að útgefendur tryggi að nauðsynlegar upplýsingar berist fréttaveitum sem þeir reiða sig á.

24. júní 2026

Seðlabanki Íslands hefur undirritað samning við Seðlabanka Evrópu um þátttöku Íslands í TIPS, rauntímagreiðslukerfi Evrukerfisins (TARGET Instant Payment Settlement). Samningurinn felur í sér að frá árinu 2028 verður unnt að gera upp rauntímagreiðslur í íslenskum krónum í TIPS.

Með þátttöku Íslands verður íslenska krónan fimmti gjaldmiðillinn sem unnt verður að nota til uppgjörs rauntímagreiðslna í TIPS. Auk evrunnar eru sænska og danska krónan þegar í kerfinu og stefnt er að því að norsk króna bætist við árið 2028.

Fjármálaeftirlit
23. júní 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð, sbr. 6. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

19. júní 2026

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Fjármálaeftirlit
18. júní 2026

Hinn 11. nóvember 2025 barst tilkynning frá Gildi lífeyrissjóði til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands um að tiltekin fjárfesting í vísitölusjóði séreignardeildar sjóðsins hafi á ákveðnu tímabili farið í 11,5% og þar með farið yfir lögbundin 10% mörk í heildareignum sama útgefanda samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrisréttinda.

Fjármálaeftirlit
16. júní 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur undanfarin misseri lagt sjálfsmöt fyrir aðila sem ber að skila daglegum viðskiptaskýrslum (TRS II skýrslur) á grundvelli 26. gr. MiFIR1

Fjármálaeftirlit
15. júní 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum ársreikninga fjármálafyrirtækja, þ.e. viðskiptabanka, sparisjóða, lánafyrirtækja og verðbréfafyrirtækja, ásamt rekstrarfélögum verðbréfasjóða og rekstraraðilum sérhæfðra sjóða, fyrir árið 2025, auk upplýsinga um heildareignir verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og heildareignir og hreina eign annarra sérhæfðra sjóða.

15. júní 2026

Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands hafa borist ábendingar um vefsíðuna LanHeimur, sem gefur sig út fyrir að vera fjármálafyrirtæki undir eftirliti fjármálaeftirlitsins.  Fjármálaeftirlitið vill taka fram að sú starfsemi sem auglýst er á vefsíðunni er ekki undir eftirliti þess. Vegna tilvísunar á vefsíðunni til íslensks einkahlutafélags telur fjármálaeftirlitið jafnframt rétt að upplýsa að það félag virðist ekki hafa nein tengsl við starfsemi vefsíðunnar.