Fara beint í Meginmál
7070 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Fjármálaeftirlit
28. október 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands vekur athygli á að hinn 12. október 2026 birti Evrópska verðbréfa- og markaðseftirlitið (ESMA) tvær nýjar leiðbeiningar um sjálfbærnitengdar fullyrðingar, með áherslu á fullyrðingar um áhrif (e. impact) og umbreytingu (e. transition).

28. október 2026

Seðlabankar Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar hafa gefið út sameiginlega skýrslu um greiðslur yfir landamæri á Norðurlöndunum.

Fjármálaeftirlit
27. október 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur gert sátt við Arion banka hf. vegna brota á 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sem hefur lagagildi hér á landi með lögum nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og brota á nánar tilgreindum ákvæðum laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.

Fjármálaeftirlit
27. október 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli sem varðaði brot einstaklings gegn 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sem hefur lagagildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum.

Peningastefna
23. október 2026

Seðlabankinn framkvæmir ársfjórðungslega útlánakönnun meðal viðskiptabankanna fjögurra. Spurt er um mat þeirra á þróun framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé, um breytingar á útlánareglum, útlánavöxtum og vaxtaálagi og hvaða þættir hafi haft ráðandi áhrif á þær breytingar á síðustu þremur mánuðum. Einnig er spurt um væntingar viðskiptabankanna um horfur næstu sex mánuði. Könnunin var framkvæmd 1.-14. þessa mánaðar og byggjast niðurstöðurnar á meðaltali svara.

Peningastefna
21. október 2026

Í lögum um Seðlabanka Íslands segir að ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum séu teknar af peningastefnunefnd og að opinberlega skuli birta fundargerðir nefndarinnar og gera grein fyrir ákvörðunum hennar og forsendum þeirra. Á grundvelli þessa birtir peningastefnunefnd fundargerðir tveimur vikum eftir að ákvarðanir hennar eru kynntar.

21. október 2026

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands tekur ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans er varða fjármálastöðugleika. Í fjármálastöðugleika felst að fjármálakerfið geti staðist áföll í efnahagslífi og á fjármálamörkuðum, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.

Peningastefna
21. október 2026

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu flutti í gær erindi um áhrif launa á verðbólgu á málstofu í Seðlabankanum. Erindið byggði á grein sem verður birt á ensku í ritröðinni Working Papers á vef Seðlabankans á næstunni.

Fjármálaeftirlit
21. október 2026

Fjármálaeftirlit Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu um aukið norrænt samstarf á sviði fjármálaeftirlits.

20. október 2026

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 09/2026, dagsettri 21. september sl., þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.