Fara beint í Meginmál

Seðlabanki Íslands hefur samstarf við innlenda aðila innan stjórnkerfisins varðandi varnir gegn peningaþvætti. Þá tekur bankinn virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði.

Innlent samstarf

Seðlabankinn tekur virkan þátt í samstarfi við aðra aðila innan stjórnkerfisins. Meðal annars er Seðlabankinn meðlimur í stýrihópi um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem skipaður er af dómsmálaráðherra. Sjá nánar um stýrihópinn á vef stjórnarráðs. Þá hefur bankinn ítarlegra samstarf við tiltekna aðila, s.s. skrifstofu fjármálagreininga lögreglu, Skattinn og utanríkisráðuneytið.

Gagnlegir tenglar

Erlent samstarf

Seðlabanki Íslands tekur virkan þátt í samstarfi á alþjóðlegum vettvangi, einkum hjá Financial Action Task Force (FATF) og Anti-Money Laundering Authority (AMLA).

FATF

FATF er alþjóðlegur fjármálaaðgerðahópur ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Með örri heimsþróun í viðskiptum og fjármagnsflæði milli ríkja, hefur þörfin fyrir alþjóðlegt samstarf og samræmingu á þessu sviði aldrei verið meiri. Ísland gerðist aðili að FATF árið 1991 og með inngöngu skuldbatt Ísland sig til að samræma löggjöf og starfsreglur við tillögur stofnunarinnar. Starf og tilmæli FATF hafa verið leiðandi á heimsvísu og hafa tilskipanir Evrópusambandsins um peningaþvætti verið í samræmi við tilmælin.

FATF semur staðla fyrir aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá leggur hópurinn mat á aðgerðir ríkja til að innleiða þessa staðla og rannsakar og lærir að þekkja aðferðir þeirra sem stunda peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Lög, reglur og starfsaðferðir hvers aðildarríkis FATF eru teknar út og ritaðar eru skýrslur um aðgerðir þeirra. Árið 2017 gerði stofnunin úttekt á eftirliti með peningaþvætti á Íslandi og var meginniðurstaða skýrslunnar sem gefin var út árið 2018 að því væri verulega ábótavant. Frá því að skýrslan kom út hefur verið unnið að úrbótum til að bregðast við niðurstöðu FATF. Á meðal þeirra aðgerða er innleiðing nýrrar löggjafar (í samræmi við fjórðu Evróputilskipun 2015/849/EB), breytt eftirlitshlutverk, aukin fræðsla og almenn vitundarvakning í tengslum við málaflokkinn.

AMLA

AMLA er ný stofnun á sviði aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnunar hryðjuverka í Evrópu. Tildrög stofnunarinnar má rekja til þess að landamæraleysi glæpa og ólögmæts ávinnings var talið stofna viðleitni Evrópusambandsins til varðar peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í hættu. Markmið stofnunarinnar er m.a. að stuðla að því að bera kennsl á og meta áhættu og ógnir í málaflokknum, tryggja vandað og samræmt eftirlit, stuðla að samræmingu starfshátta, styrkja samvinnu og upplýsingaskipti ásamt því að sinna beinu eftirliti með tilteknum tilkynningarskyldum aðilum.

Gagnlegir tenglar