Meginmál

Seðlabanki Kína og Seðlabanki Íslands endurnýja gjaldmiðlaskiptasamning

ATH: Þessi grein er frá 21. desember 2016 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Kína og Seðlabanki Íslands hafa endurnýjað gjaldmiðlaskiptasamning sinn. Upphaflegi skiptasamningurinn var gerður árið 2010 og endurnýjaður 2013. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti á milli landanna og styðja við beina fjárfestingu, ásamt því að efla fjármálaleg tengsl. Samningurinn felur í sér viðbúnað til að tryggja greiðsluflæði á milli landanna. Fjárhæð samningsins er 57 milljarðar króna eða 3,5 milljarðar kínverskra júana. Samningurinn gildir í þrjú ár og er endurnýjanlegur að þeim tíma liðnum.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569 9600

Nr. 32/2016

21. desember 2016