Fara beint í Meginmál

Fossar GP ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða26. nóvember 2020

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Fossar GP ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 18. nóvember 2020, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.