Fara beint í Meginmál

Vex ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða 26. nóvember 2020

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Vex ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 24. nóvember 2020, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.