Fara beint í Meginmál

Frumtak Ventures ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða8. janúar 2021

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Frumtak Ventures ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 6. janúar 2021, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.