Fara beint í Meginmál

Spakur Finance sf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða1. október 2021

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Spak Finance sf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 1. október 2021, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.