Fara beint í Meginmál

REC SJÓÐIR ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða23. maí 2023

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði REC SJÓÐI ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 11. maí 2023, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.