Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flytur erindi á peningamálafundi Viðskiptaráðs. Fundurinn ber yfirskriftina Hagkerfið í ölduróti. Hægt er að fylgjast með erindi seðlabankastjóra í beinu streymi hér fyrir neðan. Erindi Ásgeirs hefst klukkan 08:30.
Í erindinu ræðir Ásgeir um nýútkomna þjóðhags- og verðbólguspá Seðlabankans sem birtist í Peningamálum og um peningastefnuna. Nýjustu vísbendingar benda til þess að dregið hafi hraðar úr innlendri eftirspurn en áður var talið og að hagvaxtarhorfur hafi versnað. Þrátt fyrir það sé verðbólga enn mikil og mikilvægt að viðhalda nægilegu peningalegu aðhaldi til að tryggja að hún hjaðni með varanlegum hætti. Þá leggur seðlabankastjóri áherslu á mikilvægi þess að komið hafi verið í veg fyrir að þensla í raunhagkerfinu smitist yfir í skulda- og fjármálaþenslu, sem hefði gert efnahagslega aðlögun erfiðari.
Glærur sem seðlabankastjóri studdist við í flutningi erindisins eru aðgengilegar hér: