Fara beint í Meginmál

Fræðslufundur: Hvað einkennir virka og árangursríka stjórn? 19. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands hélt 29. október sl. fræðslufund fyrir stjórnarmenn eftirlitsskyldra aðila undir yfirskriftinni „Hvað einkennir virka og árangursríka stjórn?“

Á fundinum var fjallað um hlutverk og ábyrgð stjórna, hæfi stjórnarmanna og mikilvægi þess að bæði stjórnarmenn og stjórnin í heild búi yfir þeirri þekkingu, hæfni og reynslu sem þarf til að sinna hlutverki sínu.

Jafnframt var fjallað um það sem  einkennir virkar og árangursríkar stjórnir, með áherslu á  dómgreind, gagnrýna umræðu, árangursmat og skýra ábyrgðarskiptingu milli stjórnar og framkvæmdastjórnar. Þá var fjallað um ábyrgð stjórna á innra eftirliti, sjálfstæði eftirlitseininga og mikilvægi virks eftirlits með áhættum, veikleikum og úrbótum.

Halldóra Elín Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Seðlabanka Íslands, fjallaði um hæfiskröfur til stjórnarmanna, ábyrgð félaga á að meta hæfi þeirra og mikilvægi þess að stjórnir búi yfir viðeigandi þekkingu, hæfni og reynslu til að sinna hlutverki sínu.

Hrafnhildur S. Mooney, sérfræðingur í stjórnarháttum hjá Seðlabanka Íslands, fjallaði um það sem  einkennir virka og árangursríka stjórn, með áherslu á samsetningu og hæfni stjórnar, árangursmat, skýra ábyrgðarskiptingu og mikilvægi gagnrýninnar umræðu, upplýstrar ákvarðanatöku og eftirfylgni.

Paul Horner, formaður stjórnar Arion banka og stjórnarmaður í AIB Group, LHV Bank og National Bank of Kuwait, fjallaði um hlutverk og ábyrgð stjórna á virkni innra eftirlits, mikilvægi sjálfstæðis eftirlitseininga og um það hvernig stjórnir geta veitt virkt aðhald og fylgt eftir veikleikum og úrbótum.

Fundinum lauk með pallborðsumræðum um helstu áskoranir í stjórnarstörfum og um það sem einkennir árangursríkar stjórnir, en umræðunum stýrði Kristín Logadóttir, forstöðumaður í varúðareftirliti.

Fundurinn var vel sóttur og viðbrögð þátttakenda jákvæð sem endurspeglar mikinn áhuga á fræðslu um stjórnarhætti. Seðlabankinn hyggst halda áfram að efna til sambærilegra fræðslufunda til að efla þekkingu og auka samtal við eftirlitsskylda aðila.

Glærur og upptaka frá fundinum eru aðgengilegar hér að neðan.

Myndir frá viðburðinum