Yfirlýsing peningastefnunefndar var birt á vef Seðlabanka Íslands í dag, miðvikudaginn 20. ágúst 2025, kl. 8.30. Ritið Peningamál er birt á vefnum kl. 8.35. Vefútsending með kynningu á yfirlýsingu nefndarinnar hefst klukkan 9:30.
Á kynningunni gera Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði- og peningastefnu, grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála.
Hér eru nánari upplýsingar um peningastefnu: Peningastefna
Hér má finna tengla í útgefin rit, m.a. Peningamál: Rit og skýrslur