Fara beint í Meginmál

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar 24. september 202524. september 2025

Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi að markaðsfjármögnun greitt. Umtalsverð óvissa er þó í alþjóðamálum og langtímavextir hafa víða hækkað vegna vaxandi efasemda um sjálfbærni opinberra fjármála. Alþjóðlegir eignamarkaðir eru hátt verðlagðir og snörp verðleiðrétting gæti haft áhrif á aðgengi og kjör íslenskra fyrirtækja á erlendri fjármögnun. Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða og traustrar erlendrar eignastöðu þjóðarbúsins.

Staða kerfislega mikilvægra banka er traust og erlend fjármögnunarskilyrði hagstæð um þessar mundir. Álagspróf Seðlabankans bendir til þess að þeir hefðu nægan viðnámsþrótt til að viðhalda framboði lánsfjár og styðja við hagkerfið í alvarlegu áfalli. Mikilvægt er að bankarnir viðhaldi sterkri eiginfjárstöðu og nægu lausu fé til að takast á við möguleg áföll.

Heimili og fyrirtæki hafa heilt yfir viðhaldið viðnámsþrótti sínum þrátt fyrir viðvarandi verðbólgu og háa raunvexti. Hóflegur skuldavöxtur og traust eiginfjárstaða, sem m.a. má rekja til þétts taumhalds þjóðhagsvarúðarstefnunnar, hafa átt sinn þátt í að vanskil eru enn lítil.

Dregið hefur úr hækkun húsnæðisverðs og spenna á húsnæðismarkaði minnkað. Framboð er töluvert og lengur tekur að selja húsnæði en áður, sér í lagi nýbyggingar. Velta á húsnæðismarkaði er þó enn talsverð og kaupendum fyrstu fasteignar hefur fjölgað.

Vaxandi ógn við rekstrar- og netöryggi fjármálainnviða er fylgifiskur mikillar óvissu í alþjóðamálum og tæknivæðingar á fjármálamarkaði. Áfram þarf að efla viðbúnað fyrir mikilvæga innviði og vinna markvisst að því að auka viðnámsþrótt í greiðslumiðlun.

Fjármálastöðugleikanefnd ákvað að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.

Frétt nr. 13/2025
24. september 2025