Meginmál

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar 4. júní 2025

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar 4. júní 2025

Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi að markaðsfjármögnun greitt. Mikil óvissa er þó í alþjóðamálum og hafa sveiflur á alþjóðlegum fjármálamörkuðum aukist. Efnahagshorfur hér á landi gætu orðið fyrir áhrifum af þeim sökum. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að standa vörð um viðnámsþrótt fjármálakerfisins.

Viðvarandi verðbólga og háir vextir hafa skapað áskoranir fyrir heimili og fyrirtæki síðustu misseri. Vanskil í fjármálakerfinu eru þó lítil og efnahagsreikningar einkageirans almennt sterkir. Skuldavöxtur hefur verið hóflegur og skuldahlutföll heimila og fyrirtækja eru lág í sögulegum og alþjóðlegum samanburði. Þétt taumhald þjóðhagsvarúðartækja hefur stutt viðnámsþrótt fjármálakerfisins.

Fasteignaverð er enn hátt á flesta mælikvarða en dregið hefur úr hækkun þess og spenna minnkað á húsnæðismarkaði. Umsvif í byggingariðnaði eru töluverð og útlit fyrir áþekkt framboð nýbygginga og síðustu ár. Þrátt fyrir að hægt hafi á sölu fasteigna er eiginfjárstaða byggingargeirans sterk, sem veitir honum svigrúm til að mæta mótbyr.

Rekstraráhætta fjármálainnviða er viðvarandi áskorun. Fjármálastöðugleikanefnd leggur áherslu á að fjármálainnviðir séu öruggir, skilvirkir, hagkvæmir og aðgengilegir. Brýnt er að hafa yfirsýn með kerfislega mikilvægum fjármálainnviðum og kjarnainnviðum og að til staðar séu viðbragðsáætlanir við rekstraráföllum. Áfram þarf að vinna markvisst að því að auka viðnámsþrótt í greiðslumiðlun, m.a. með því að koma á fót innlendri óháðri smágreiðslumiðlun og greiðslukortalausn án nettengingar.

Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.

Frétt nr. 8/2025
4. júní 2025