Seðlabanki Íslands leggur áherslu á metnaðarfullt starfsumhverfi með það að markmiði að byggja upp trausta liðsheild. Með áherslu á virðingu og vellíðan, jafnrétti, þekkingu, fagmennsku og framsækni nær bankinn markmiðum sínum með árangursríkum hætti.
Hversu vel þekkir þú gangverk verðbréfamarkaðarins?
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing í deild verðbréfamarkaða á sviði háttsemiseftirlits, sem er annað af tveimur eftirlitssviðum bankans.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing í deild verðbréfamarkaða á sviði háttsemiseftirlits, sem er annað af tveimur eftirlitssviðum bankans.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem tækifæri gefst til þess að öðlast djúpa þekkingu á verðbréfamarkaðinum.
Í deild verðbréfamarkaða starfar öflugur hópur sem sinnir meðal annars verkefnum sem snúa að eftirliti með innviðum s.s. kauphöllum og verðbréfamiðstöðvum, framkvæmd og uppgjör verðbréfaviðskipta, upplýsingaskyldu útgefenda, gagnsæi á markaði, markaðssvikum og gagnaskilum. Að auki er lögð rík áhersla á hagnýta notkun gagna og aðferðir við að nýta gervigreind við eftirlit.
Helstu verkefni:
- Eftirlit með innviðum á verðbréfamarkaði.
- Eftirlit með gagnagæðum á verðbréfamarkaði.
- Þróun eftirlits með innviðum, gagnagæðum og kerfum eftirlitsskyldra aðila.
- Þátttaka í innleiðingu innra verklags og gæðaskjala í tengslum við nýja og breytta löggjöf á verðbréfamarkaði.
- Aðkoma að eftirliti með viðskiptum og upplýsingagjöf á verðbréfamarkaði.
- Hagnýting gervigreindar við eftirlit.
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi á sviði verðbréfamarkaða.
- Önnur verkefni tengd verðbréfamarkaðseftirliti.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í viðskiptafræði, fjármálum eða tengdu sviði.
- Þekking og reynsla af störfum á fjármálamarkaði.
- Reynsla af verðbréfauppgjöri, gagnaskilum og innleiðingu kerfa.
- Reynsla af innleiðingu nýs regluverks í verklag á verðbréfamarkaði.
- Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur.
- Frumkvæði, öguð vinnubrögð, greiningarhæfni, ábyrgð, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar veita Aðalsteinn Eymundsson forstöðumaður verðbréfamarkaða (adalsteinn.eymundsson@sedlabanki.is) og Telma Ýr Unnsteinsdóttir mannauðsráðgjafi (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2025.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Hefur þú þekkingu og reynslu af löggjöf á fjármálamarkaði?
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða öflugan lögfræðing í deild viðskiptahátta á sviði háttsemiseftirlits, sem er annað af tveimur eftirlitssviðum bankans.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða öflugan lögfræðing í deild viðskiptahátta á sviði háttsemiseftirlits, sem er annað af tveimur eftirlitssviðum bankans.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem tækifæri gefst til að öðlast djúpa þekkingu á eftirliti með og greiningu á viðskiptaháttum á fjármálamarkaði.
Í viðskiptaháttum starfar öflugur hópur að fjölbreyttum verkefnum þvert á markaði. Deildin hefur eftirlit með viðskiptaháttum eftirlitsskyldra aðila, þ.m.t. fjárfestavernd og málefnum neytenda. Verkefnin snúa til dæmis að eftirliti með kröfum um veitingu fjárfestingarþjónustu og dreifingu vátryggingaafurða, s.s. vöruþróun og dreifingu, sölu og markaðssetningu, ráðstöfunum vegna hagsmunaárekstra, upplýsingagjöf til viðskiptavina og flokkun viðskiptavina. Deildin kemur einnig að umsóknum um starfsleyfi og gerð laga og reglna.
Helstu verkefni:
- Eftirlit með og greining á viðskiptaháttum á fjármálamarkaði.
- Lögfræðiráðgjöf í álitamálum tengdum viðskiptaháttum.
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi.
- Þátttaka í innra starfi Seðlabankans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Grunn- og meistaranám eða embættispróf í lögfræði.
- Þekking á stjórnsýslurétti og löggjöf á fjármálamarkaði.
- Reynsla af störfum hjá eftirlitsskyldum aðilum sem tengjast hlítni við löggjöf á fjármálamarkaði er kostur.
- Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar er kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum.
- Frumkvæði, öguð vinnubrögð, greiningarhæfni, ábyrgð, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar veita Inga Dröfn Benediktsdóttir forstöðumaður viðskiptahátta (inga.drofn.benediktsdottir@sedlabanki.is) og Telma Ýr Unnsteinsdóttir mannauðsráðgjafi (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2025.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Sérfræðistörf
Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands þurfi að semja við sérfræðinga til að sinna tilteknum verkefnum eins og að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila.
Nánar
Reykjavík - Hlutastarf
Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands þurfi að semja við sérfræðinga til að sinna tilteknum verkefnum. Þá hefur fjármálaeftirlitið sérstaka heimild til að skipa sérfræðing til að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Jafnframt hefur fjármálaeftirlitið meðal annars heimild til að skipa við sérstakar aðstæður fjármálafyrirtæki bráðabirgðastjórnanda, sbr. 107. gr. e laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og vátryggingafélagi slitastjórn, sbr. 152. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.
Fjármálaeftirlitið tekur við ferilskrám, og eftir atvikum kynningarbréfum, þeirra sem eru reiðubúnir að gefa kost á sér til slíkra starfa. Einnig geta fyrirtæki gefið kost á tilteknum starfsmönnum sínum til slíkra starfa. Leitað er að einstaklingum með fjölbreytta þekkingu og reynslu á sviði lögfræði, viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, fjármálamarkaða, reksturs, stjórnunar, upplýsingatækni, reikningsskila o.fl.
Ferilskrá, og eftir atvikum kynningarbréf, skulu gefa glögga mynd af menntun og reynslu hlutaðeigandi. Upplýsingarnar verða aðgengilegar viðeigandi stjórnendum innan fjármálaeftirlitsins ef til greina kemur að semja við sérfræðing til að sinna tilteknu verkefni. Þá skulu upplýsingar um heimilisfang, símanúmer og netfang fylgja ferilskránni. Jafnframt er mikilvægt að fram komi upplýsingar um tengsl hlutaðeigandi við einstaka eftirlitsskylda aðila. Vakin er athygli á því að almennt koma starfsmenn eftirlitsskyldra aðila ekki til greina til umræddra sérfræðistarfa.
Fyrirspurnir má senda á netfangið sedlabanki@sedlabanki.is.
Almenn umsókn
Hér getur þú sent inn almenna umsókn í tímabundin störf.
Nánar
Reykjavík - Hlutastarf
Takk fyrir að sýna því áhuga á að starfa með okkur í Seðlabanka Íslands.
Seðlabanka Íslands ber skylda til að auglýsa opinberlega laus störf samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. nánar reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsþjálfun
Hér getur þú sent inn umsókn um starfsþjálfun.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
Takk fyrir að sýna því áhuga að koma í starfsþjálfun hjá okkur í Seðlabanka Íslands.
Hér getur þú sótt um að koma til okkar í starfsþjálfun. Við förum reglulega yfir umsóknir og verðum í sambandi ef við höfum lausa starfsþjálfunarstöðu við þitt hæfi. Starfsþjálfun er einstakt tækifæri fyrir háskólanema til að öðlast hagnýta og starfstengda reynslu og er markmið okkar að bjóða reglulega upp á fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur til að kynnast verkefnum og starfsemi bankans.