Meginmál

Peningamál birt

Ritið Peningamál 2024/1 hefur verið birt hér á vef Seðlabanka Íslands. Í Peningamálum gerir Seðlabankinn grein fyrir horfum í efnahags- og peningamálum. Ritið kemur út fjórum sinnum á ári.

Í byrjun maí og byrjun nóvember er þar birt verðbólgu- og þjóðhagsspá ásamt ýtarlegri umfjöllun um þróun og horfur í efnahags- og peningamálum. Í febrúar og ágúst er birt uppfærð verðbólgu- og þjóðhagsspá með styttri umfjöllun um þróun og horfur efnahags- og peningamála. Greiningin og spáin gegnir síðan mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar.

Sjá hér: yfirlit yfir efni tengt Peningamálum.