Eftirlit á verðbréfamarkaði miðar að því að stuðla að heilindum markaðarins, vernd fjárfesta og trausti þeirra á markaðnum. Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með framkvæmd fjölbreyttrar löggjafar sem mótar umgjörð og stuðlar að háttsemi á verðbréfamarkaði.
Fjárfestavernd er mikilvægt markmið í daglegu eftirliti Seðlabankans þvert á markaði. Nánari upplýsingar um vernd fjárfesta má finna á sérstakri síðu um fjárfestavernd. Á neytendasíðu Seðlabankans má jafnframt nálgast ýmsan fróðleik um fjármálaþjónustu.
Jafn aðgangur fjárfesta að áreiðanlegum og tímanlegum upplýsingum er ein af grundvallarforsendum trausts á verðbréfamarkaði. Seðlabankinn hefur því eftirlit með upplýsingagjöf útgefenda og því að kröfum um gagnsæi viðskipta og tilboða sé fylgt. Þessar kröfur stuðla að upplýstum fjárfestingarákvörðunum og skilvirkri verðmyndun. Þá hefur bankinn eftirlit með framkvæmd viðskipta og því að aðilar sem sjá um eða framkvæma viðskipti í atvinnuskyni uppfylli skyldur sínar til að greina og tilkynna grunsamleg fyrirmæli og viðskipti.
Á verðbréfamarkaði starfa aðilar sem gegna mikilvægu hlutverki við rekstur innviða markaðarins. Þar á meðal eru rekstraraðilar markaða og verðbréfamiðstöðvar sem sinna uppgjöri viðskipta og rafrænni eignaskráningu verðbréfa. Seðlabankinn hefur eftirlit með því að starfsemi þessara aðila uppfylli þær kröfur sem lög og reglur gera til hennar, meðal annars um öruggan og traustan rekstur.