Meginmál

MREL-kröfur fela í sér að fjármálafyrirtæki hafi yfir að ráða nægu fjármagni sem tryggja að hægt verði að endurreisa fyrirtækið ef til falls kemur. Skilavald Seðlabanka Íslands tekur ákvörðun um MREL-kröfur hvers fyrirtækis með hliðsjón af skilaáætlun fyrirtækis og æskilegustu skilastefnu áætlunarinnar. Með ákvörðun um MREL-kröfur er búið í haginn svo hægt verði að beita eftirgjöf, þ.e. niðurfærslu skulda eða skuldbindinga eða umbreyta þeim í eigið fé, ef til falls kemur. Í stað þess að fallin fjármálafyrirtæki verði endurfjármögnuð með ríkisaðstoð (e. bail-out) verði fjármagni lánardrottna þeirra varið til endurfjármögnunar (e. bail-in), þ.e. niðurfært og umbreytt í nýtt hlutafé. Krafan hefur einnig annað markmið, sem er að sjá til þess að tapþol (e. loss absorbency) fjármálafyrirtækja sé fullnægjandi.

MREL er almennt reiknað sem samtala eiginfjárgrunns og hæfra skuldbindinga í hlutfalli við heildar áhættugrunn (e. Total Risk Exposure Amount - TREA) viðkomandi fjármálafyrirtækis. Þegar átt er við hæfar skuldbindingar eru þær skilgreindar sem fjármagnsgerningar fjármálafyrirtækis sem hvorki teljast til eiginfjárgrunns né eru þær sérstaklega undanskildir frá heimild skilavalds til að krefjast eftirgjafar (e. bail-in), þ.e. niðurfærslu skulda eða umbreytingu skulda í eigið fé.

Fjármálafyrirtæki sem ekki uppfylla skilyrði skilameðferðar fara í hefðbundna slitameðferð í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki. Þeim verður einungis gert að uppfylla almennar eiginfjárkröfur fjármálafyrirtækja.

MREL-stefna Seðlabanka Íslands(424,59 KB)