Skýrsla bankaeftirlits Seðlabanka Íslands um lífeyrissjóði hefur nú veriðgefin út í sjötta sinn. Hún er unnin upp úr ársreikningum lífeyrissjóða fyrirárið 1996 og tryggingafræðilegum athugunum á lífeyrissjóðum.
Í árslok 1996voru starfandi lífeyrissjóðir 66 og hafði þeim fækkað um 9 á árinu. Af 66lífeyrissjóðum tóku 9 ekki lengur við iðgjöldum, þannig að fullstarfandi sjóðirvoru 57. Af 66 lífeyrissjóðum voru 56 sameignarsjóðir og 10 séreignasjóðir. Afsameignarsjóðum voru 5 með ábyrgð ríkissjóðs, 9 með ábyrgð sveitarfélaga, 2 meðábyrgð ríkisbanka, 3 með ábyrgð hlutafélaga og 37 án ábyrgðar annarra.
Helstu niðurstöður skýrslunnar
Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok1996 nam 306,5 ma.kr. samanborið við 262,6 ma.kr. í árslok 1995. Aukningin áárinu var 16,7% sem samsvarar 14,3% raunaukningu miðað við hækkun vísitöluneysluverðs. Ráðstöfunarfé skv. sjóðstreymi á árinu 1996 nam samtals 62,7 ma.kr.samanborið við 46,8 ma.kr. árið á undan. Raunávöxtun eigna allralífeyrissjóðanna á árinu 1996 var 7,8% en 6,9% árinu 1995. Hrein raunávöxtuneigna allra lífeyrissjóðanna á árinu 1996 reyndist vera 7,6% miðað við hækkunneysluverðsvísitölu en 6,6% á árinu 1995. Á árinu 1996 námu iðgjöld samtals 19ma.kr. en 17 ma.kr. árið 1995. Á árinu 1996 nam gjaldfærður lífeyrir 9,3 ma.kr.en 8,4 ma.kr. árið 1995. Kostnaður á árinu 1996, þ.e. rekstrargjöld aðfrádregnum rekstrartekjum, nam samtals 747 m.kr. en sambærileg fjárhæð á árinu1995 var 691 m.kr. Sem hlutfall af eignum, þ.e. meðaltali hreinnar eignar tilgreiðslu lífeyris, nam kostnaður 0,3% árið 1996 sem er sama hlutfall og árið1995 fyrir lífeyrissjóðina í heild.
Nr. 24/1997
12. september 1997