Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokseptember 1997 og til samanburðar í lok desember 1996 ásamt breytingum ímánuðinum og frá ársbyrjun til loka september.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um 4 milljarða króna í septemberog nam í lok mánaðarins 30,8 milljörðum króna. Erlendar skammtímaskuldir bankanseru óverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.
Á gjaldeyrismarkaði nam nettó gjaldeyrissala Seðlabankans í september1,5 milljörðum króna. Eftir lækkun um 0,4% í september hafði gengi íslenskukrónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkað um 1,4% frá áramótum tilloka september.
Heildareign Seðlabankans ímarkaðsskráðum verðbréfum jókst í september um tæpa 0,3 milljarða króna og er þámiðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs lækkaði um rúma0,8 milljarða króna en ríkisbréfaeignin jókst um tæpan 0,1 milljarð króna.Ríkisvíxlaeignin jókst um 1 milljarð króna og nam í mánaðarlok tæpum 1,9milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 2,5 milljarðakróna í september en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðuum 0,1 milljarð króna og námu 3,1 milljarði króna í mánaðarlok. Grunnfé bankanslækkaði um 2,7 milljarða króna og nam 19,1 milljarði króna í lok september.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 27/1997
6. október 1997