Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokdesember 1997 og til samanburðar í lok desember 1996 ásamt breytingum ímánuðinum og frá ársbyrjun til ársloka. Þar sem árslokauppgjöri og endurskoðuner ekki lokið eru tölur fyrir desemberlok 1997 bráðabirgðatölur og kunna þær aðtaka breytingum í endanlegu uppgjöri.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um rúma 0,9 milljarða króna ídesember og nam í lok mánaðarins 28 milljörðum króna. Erlendar skammtímaskuldirbankans eru óverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.
Á gjaldeyrismarkaði nam nettó gjaldeyrissala Seðlabankans í desembertæpum 0,1 milljarði króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölugengisskráningar, hækkaði í desember um 0,1%. Frá ársbyrjun 1997 til árslokahækkaði gengi krónunnar 1,4%.
Heildareign Seðlabankans ímarkaðsskráðum verðbréfum lækkaði í desember um rúma 0,2 milljarða króna og erþá miðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs jókst umtæpan 0,1 milljarð króna og ríkisbréfaeignin jókst um rúman 0,1 milljarð króna.Ríkisvíxlaeignin lækkaði um 0,4 milljarða króna og nam í mánaðarlok 2,8milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 3,8 milljarðakróna í desember en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu umrúma 0,5 milljarða króna og námu 6,4 milljörðum króna í árslok 1997. Grunnfébankans hækkaði um 3,3 milljarða króna í mánuðinum og nam 19,7 milljörðum krónaí lok ársins. Vöxtur þess yfir árið var3,3%.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 1/1998
12. janúar 1998