Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokfebrúar 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum í mánuðinumog frá áramótum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um rúma 1,4 milljarða króna ífebrúar og nam í lok mánaðarins 26,3 milljörðum króna (jafnvirði 367 milljónabandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans eruóverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.
Á gjaldeyrismarkaði námu nettó gjaldeyriskaup Seðlabankans í febrúartæpum 5,4 milljörðum króna. Rýrnun gjaldeyrisforðans í febrúar stafaði af söluSeðlabankans á gjaldeyri vegna vaxta- og endurgreiðslna á erlendum lánumríkissjóðs umfram kaup bankans á gjaldeyri á markaði. Gengi íslensku krónunnar,mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði í febrúar um1,2%.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfumrýrnaði í febrúar um rúma 1,7 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð.Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs jókst um rúma 0,5 milljarða króna enríkisbréfaeignin lækkaði um 0,1 milljarð króna. Ríkisvíxlaeignin lækkaði um 2,2milljarða króna og nam í mánaðarlok 5 milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans áinnlánsstofnanir lækkuðu um 0,3 milljarða króna í febrúar en nettókröfur bankansá ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,1 milljarð króna og námu 7,3milljörðum króna í lok febrúar. Grunnfé bankans lækkaði um 2,1 milljarð króna ímánuðinum og nam 16,9 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 7/1998
5. mars 1998