Meginmál

Verðbólguspá Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 22. apríl 1998 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands gerir verðbólguspá fjórum sinnum áári, í janúar, apríl, júlí og október. Þróun verðlags á fyrsta fjórðungi ársins1998 liggur fyrir og spáir bankinn nú að verðbólga á milli áranna 1997 og 1998verði 2,3%, en 2,1% frá upphafi til loka ársins 1998. Í janúarspá bankans vorusamsvarandi tölur 2,6% og 2,3%.

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,4% á milli fjórða ársfjórðungs 1997 ogfyrsta ársfjórðungs 1998 sem svarar til 1,7% verðbólgu á ári. Hækkunin er aðmestum hluta til komin vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis og á húsaleigu aukþess sem verð á þjónustu hækkaði nokkuð. Athygli vekur hins vegar að innlendarvörur án búvöru og grænmetis hækkuðu nánast ekkert í verði frá desember 1997 tilapríl í ár. Spá Seðlabankans frá því í janúar gerði ráð fyrir töluvert meirihækkun vísitölunnar, eða 0,8%. Frávikið er þó innan tölfræðilegra vikmarka.

Á öðrum og þriðja fjórðungi ársins 1998 má gera ráð fyrir að verðbólga verðinokkru meiri en á þeim fyrsta en að hún lækki undir lok ársins eins ogundanfarin ár. Samkvæmt forsendum spárinnar er gert ráð fyrir að launaskriðverði 2% á árinu 1998 í stað 1,5% í spá bankans frá því í janúar. Einnig er gertráð fyrir að markaðsverð húsnæðis hækki umfram almenna verðlagsþróun og hafiþannig áhrif til hækkunar vísitölunnar líkt og gert var ráð fyrir í janúar. Ámóti kemur að gert er ráð fyrir að framleiðni vaxi um 3% á árinu í stað 2,5%eins og gert var ráð fyrir í spánni í janúar. Með hliðsjón af kreppunni íAsíulöndum og fyrirliggjandi spám alþjóðlegra efnahagsstofnana er gert ráð fyrirað innflutningsverð í erlendri mynt verði óbreytt á árinu 1998. (Sjámeðfylgjandi töflu.)

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson aðalhagfræðingur bankans í síma 5699600.

Nr. 17/1998

22. apríl 1998