Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 6. maí 1998 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokapríl 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum í mánuðinum.

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um tæpan 1,1 milljarð króna í aprílog nam í lok mánaðarins 28,4 milljörðum króna (jafnvirði 396 milljónabandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans eruóverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.

 Á gjaldeyrismarkaði námu nettó gjaldeyriskaup Seðlabankans í apríltæpum 3,7 milljörðum króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölugengisskráningar, hækkaði í apríl um 0,2%.

 HeildareignSeðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum jókst í apríl um rúma 0,5 milljarðakróna og er þá miðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðslækkaði um 0,3 milljarða króna en ríkisbréfaeignin hækkaði lítillega.Ríkisvíxlaeignin jókst um 0,9 milljarða króna og nam í mánaðarlok rúmum 1,8milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,7milljarða króna í apríl en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanirlækkuðu um 0,5 milljarða króna og námu 3,6 milljörðum króna í lok apríl. Grunnfébankans hækkaði um milljarð króna í mánuðinum og nam 19,1 milljarði króna í lokhans.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 21/1998

6. maí 1998