Bandaríska matsfyrirtækið Standard & Poor's staðfesti í dag óbreyttlánshæfismat á ríkissjóði Íslands en tilkynnti um leið jákvæðar horfur umlánshæfiseinkunn Íslands á erlendum skuldbindingum til langs tíma.
Lánshæfiseinkunn Standard & Poor's er A+ fyrir erlendarlangtímaskuldbindingar og A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar sem er hæstaskammtímaeinkunn sem fyrirtækið gefur. Lánshæfiseinkunn fyrir innlendarskuldbindingar til langs tíma er AA+.
Í frétt Standard & Poor's segir að lánshæfismatið og horfur á hækkun þessbyggist m.a. á skynsamlegri efnahagsstefnu sem leitt hefur til stöðugleika íefnahagslífinu, styrkri stjórn á nýtingu fiskistofna, aukinni fjölbreytni íhagkerfinu, mikilvægum kerfisumbótum og langvarandi þjóðfélagslegum ogstjórnmálalegum stöðugleika. Lánshæfismatinu eru hins vegar settar skorður afháum erlendum skuldum samanborið við lönd með svipað lánshæfismat, viðkvæmniefnahagslífsins fyrir ytri áföllum og þörf fyrir frekari kerfisumbætur til aðdraga úr umfangi opinbera geirans, sérstaklega með einkavæðingu fjármálastofnanaog stórra fyrirtækja í opinberri eigu.
Jákvæðar horfur um breytingu á lánshæfiseinkunn byggjast á því mati Standard& Poor's að áframhaldandi skynsamleg hagstjórn og kerfisumbætur muni styrkjaundirstöður hagkerfisins og fjárhagslega stöðu þess og gera því þar með beturkleift að mæta ytri áföllum. Hækkun lánshæfiseinkunnar muni ekki síst ráðast afgetu stjórnvalda til þess að halda jafnvægi í opinberum fjármálum yfirhagsveifluna og að draga úr umfangi hins opinbera í þjóðarbúskapnum, ekki síst ífjármálageiranum. Þá myndi frekari lækkun erlendra skulda hafa jákvæð áhrif álánshæfismatið. Hins vegar myndi skortur á aðhaldi í ríkisfjármálum og/eðaumtalsverðar tafir á nauðsynlegum viðbrögðum við framvindu efnahagsmála koma íveg fyrir hækkun lánshæfismatsins.
Sendinefndir Standard & Poor's koma til Íslands til viðræðna við fulltrúastjórnvalda með reglulegu millibili, síðast í mars 1998. Seðlabanki Íslandsannast reglubundin samskipti við Standard & Poor's og önnur alþjóðlegfyrirtæki af sama toga.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Jón Þ.Sigurgeirsson, deildarstjóri á alþjóðasviði bankans í síma 569 9600.
Nr. 25/1998
26. maí 1998