Meginmál

Nýjar reglur um fyrirgreiðslu við viðskiptavaka-afnám fjárvörslusamninga

ATH: Þessi grein er frá 29. maí 1998 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Undanfarin tvö ár hafa verið í gildi svonefndir fjárvörslusamningar á milliSeðlabanka Íslands og nokkurra aðila að Verðbréfaþingi Íslands. Tilgangur þeirravar að stuðla að traustari verðmyndun ríkisskuldabréfa á eftirmarkaði. Gildandisamningar renna út í lok þessa mánaðar. Seðlabankinn telur ekki lengur þörffyrir samninga af þessu tagi og mun því ekki sækjast eftir framlengingu þeirra.Ástæðan er sú að nokkrir aðilar að Verðbréfaþingi hafa að eigin frumkvæði lýstþví yfir að þeir muni gegna hlutverki viðskiptavaka fyrir markflokkaríkisskuldabréfa með eigi lakari hætti en fjárvörslusamningarnir fólu í sér.

Samhliða þessu hefur Seðlabankinn endurskoðað gildandi reglur umfyrirgreiðslu sína við viðskiptavaka ríkisskuldabréfa og eru meginbreytingarnarfjórþættar. Í fyrsta lagi er hlutverk viðskiptavaka skilgreint betur en áður ogsamræmt því sem gilti í fjárvörslusamningum bankans. Í öðru lagi er aðgangur aðfyrirgreiðslu bankans bundinn því að viðkomandi fyrirtæki sé viðskiptavaki íöllum markflokkum ríkisskuldabréfa. Í þriðja lagi er aðgangur að fyrirgreiðsluháður því að eiginfjárstaða viðkomandi sé yfir tilteknu lágmarki. Í fjórða lagier viðskiptavökum sem uppfylla ofangreind skilyrði veittur aðgangur að vikulegumuppboðum Seðlabankans á endurhverfum samningum með sama hætti og bindiskyldumlánastofnunum.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Yngvi ÖrnKristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs bankans í síma 569-9600.

Nr. 26/1998

29. maí 1998