Þegar ný gengisskráningarvog var tekin upp í september1995 var ákveðið að hún yrði framvegis endurskoðuð árlega í ljósi samsetningarutanríkisviðskipta árið áður. Slík endurskoðun fór síðast fram í júní 1997. Ísamræmi við þetta hefur gengisskráningarvogin nú verið endurskoðuð. Hin nýja vogmun mæla gengisbreytingar frá 30. júní 1998 og þar til ný vog verður tekin upp,væntanlega um svipað leyti á næsta ári. Breytingar frá fyrri vog eru einkum þærað vægi Bandaríkjadollars eykst nokkuð á kostnað japansks jens og mynta landaEvrópu. Meðfylgjandi tafla sýnir nýju vogina og breytingar frá þeirri fyrri.
Áhersla skal lögð á að aðeins er um að ræða tæknilega breytingu áþeirri gengisvog sem notuð er við daglegan útreikning á gengi krónunnar og felurhún ekki í sér neina breytingu á gengisstefnunni. Markmið árlegrar endurskoðunará voginni er að tryggja að hún endurspegli ætíð eins vel og kostur ersamsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Már Guðmundsson,aðalhagfræðingur bankans, í síma 569-9600.
Nr. 33/1998
29. júní 1998