Viðskiptaráðherra hefur sett Ragnar Hafliðason forstöðumann bankaeftirlitsSeðlabanka Íslands frá 4. júlí 1998 til loka ársins. Þórður Ólafsson lét afstörfum sem forstöðumaður í dag 3. júlí og fer til starfa hjáAlþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Ragnar Hafliðason hefur starfað við bankaeftirlit Seðlabanka Íslands frá 1976ef frá eru talin árin 1981 til 1985 þegar hann vann að endurskoðunarstörfum.Undanfarin ár hefur Ragnar verið aðstoðarforstöðumaður bankaeftirlitsSeðlabankans.
Sem kunnugt er samþykkti Alþingi í byrjun júní sl. lög umFjármálaeftirlit sem fela í sér sameiningu bankaeftirlits Seðlabanka Íslands ogVátryggingaeftirlitsins. Skv. lögunum tekur hin nýja stofnun til starfa í byrjunnæsta árs og um leið leggst niður starfsemi bankaeftirlits Seðlabanka Íslands ogVátryggingaeftirlitsins.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands í síma569-9600.
Athygli er vakin á að fréttir Seðlabanka Íslands eru birtar á heimasíðubankans (http://www.sedlabanki.is) umleið og þær eru gefnar út.
Nr. 36/1998
3. júlí 1998