Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokágúst 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum í mánuðinumog frá áramótum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans lækkaði um rúma 1,2 milljarða króna íágúst og nam í lok mánaðarins 29,2 milljörðum króna (jafnvirði 408,4 milljónabandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans hækkuðuum 1 milljarð króna í mánuðinum og námu 1,2 milljörðum króna í lok hans. Í ágústendurgreiddi ríkissjóður erlend lán að jafnvirði 1,7 milljarða króna.
Á gjaldeyrismarkaði voru hrein gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans neikvæð796 milljónir króna í ágúst. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölugengis-skráningar, lækkaði í ágúst um 0,3%.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum jókst í ágúst um2,3 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð. Eign bankans íspariskírteinum ríkis-sjóðs og ríkisbréfaeign stóðu í stað en ríkisvíxlaeignjókst hins vegar um 2,3 milljarða króna og nam í mánaðarlok 4,1 milljarðikróna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 2,3 milljarða króna í ágústen nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 1,2 milljarðakróna og voru jákvæðar um 4,6 milljarða króna í lok ágúst sem þýðir að innstæðurríkissjóðs í bankanum námu lægri fjárhæð en brúttókröfur hans á ríkið. Grunnfébankans lækkaði um 2,5 milljarða króna í mánuðinum og nam 23,5 milljörðum krónaí lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttiraðal-bókari í síma 569-9600.
Nr. 48/1998
4. september 1998