Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 5. október 1998 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokseptember 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum ímánuðinum og frá áramótum.

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans lækkaði um hálfan milljarð króna íseptember og nam í lok mánaðarins 28,7 milljörðum króna eða jafnvirði 414milljóna bandaríkjadala.  Erlendar skammtímaskuldir bankans jukust ímánuðinum um 2 milljarða króna og voru í mánaðarlok um 3,3 milljarðar króna.

 Á gjaldeyrismarkaði voru hrein gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans neikvæðum 1,7 milljarða króna í september.  Gengi íslensku krónunnar, mælt meðvísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,5%.

 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum minnkaði íseptember um 3,1 milljarða króna, miðað við markaðsverð, mest vegna sölu áspariskírteinum til ríkissjóðs. Í lok mánaðarins nam spariskírteinaeign bankansum 5 milljörðum króna en hún var um 8 milljarðar í upphafi mánaðarins. Ríkisbréfog ríkisvíxlar í eigu bankans breyttust hins vegar óverulega.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir breyttust nær ekkert í september eninnstæður þeirra í bankanum lækkuðu um 2,4 milljarða króna. Nettókröfur bankansá ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 0,7 milljarða króna og námu um 3,9milljörðum króna í lok september. Grunnfé bankans lækkaði um 2,8 milljarða krónaí mánuðinum og nam 20,7 milljörðum króna í lok hans.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 55/1998

5. október 1998