Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands var 27,8 milljarða krónahalli á viðskiptajöfnuði á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 5,3milljarða króna halla á sama tímabili í fyrra. Mikill vöxtur innflutnings skýriraukinn halla á viðskiptum við útlönd. Hann var mestur um 17 milljarðar króna áfyrsta ársfjórðungi en þá fór saman hratt vaxandi innflutningur og samdráttur ívöruútflutningi. Útflutningur hefur aukist á ný og var vöxtur hans litlu minnien innflutnings á þriðja ársfjórðungi, 22% á móti 24%. Viðskiptahalli var þá 3,9milljarðar króna samanborið við 2,2 milljarða króna á sama tímabili í fyrra.
Fjármagnsjöfnuður hefur einkennst af miklu gjaldeyrisinnstreymi vegnaerlendra lántaka lánastofnana og beinni fjárfestingu erlendra aðila á Íslandi. Áfyrstu níu mánuðum ársins námu nettó fjármagnshreyfingar til landsins 28milljörðum króna þrátt fyrir umtalsverðar endurgreiðslur erlendra lánaríkissjóðs og meiri kaup Íslendinga á erlendum verðbréfum en í fyrra.Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði á þriðja fjórðungi ársins en styrktist um1,2 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum þess.
Taflan sýnir samandregið yfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd.Ítarlegar upplýsingar um greiðslujöfnuðinn verða birtar í desemberhefti Hagtalnamánaðarins
Nr. 69/1998
30. nóvember 1998