Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokdesember 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum ímánuðinum og frá áramótum. Þar sem áramótauppgjöri og endurskoðun er ekki lokiðeru tölur fyrir desemberlok 1998 bráðabirgðatölur og kunna þær að takabreytingum í endanlegu uppgjöri.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 0,6 milljarða króna í desember ognam í lok mánaðarins 29,6 milljörðum króna (jafnvirði 427 milljónabandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans lækkuðulítillega í desember.
Á gjaldeyrismarkaði voru bókfærð gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans jákvæð um1,1 milljarða króna í desember, en bankinn átti gjaldeyrisviðskipti á innlendummarkaði fyrir 2,8 milljarða króna í mánuðinum. Gengi íslensku krónunnar mælt meðvísitölu gengisskráningar hækkaði um 0,4% í desember og um 0,7% frá ársbyrjuntil loka desember.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum minnkaði ídesember um 2,8 milljarða króna miðað við markaðsverð og nam í mánaðarlok 7,9milljörðum króna. Ríkisvíxlaeignin minnkaði um 1,8 milljarða króna ogríkisbréfaeignin minnkaði um 1 milljarð króna. Spariskírteinaeignin breyttisthins vegar nær ekkert. Á árinu í heild minnkaði eign bankans í markaðsskráðumverðbréfum um 7,9 milljarða króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 6 milljarða króna ídesember en innstæður þeirra í bankanum lækkuðu um 3 milljarða króna. KröfurSeðlabankans á aðrar fjármálastofnanir drógust saman um 1,3 milljarða króna, eninnstæður þeirra í bankanum jukust aftur á móti um 1,2 milljarða króna ímánuðinum.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 6,8 milljarðakróna í mánuðinum og voru neikvæðar um 8,2 milljarða króna í lok ársins semþýðir að innstæður ríkisins í bankanum námu hærri fjárhæð en brúttókröfur hans áríkið.
Grunnfé bankans lækkaði um 2,7 milljarða króna í mánuðinum, en jókst á árinuum 0,9 milljarða króna og nam 20,6 milljörðum króna í árslok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 3/1999
13. janúar 1999