Seðlabanki Íslands hefur endurskoðað verðbólguspá sína fyrir árið 1999 íljósi nýjustu mælinga vísitölu neysluverðs og upplýsinga um þróun undirliggjandistærða. Seðlabankinn spáir nú 1,9% verðbólgu milli ársmeðaltala 1998 og 1999 og2,2% verðbólgu frá upphafi til loka árs 1999.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,5% á milli þriðja og fjórða ársfjórðungs1998, sem samsvarar 2,2% verðbólgu á heilu ári. Spá Seðlabankans í október sl.gerði ráð fyrir 0,2% hækkun á milli ársfjórðunganna. Frávikið er innantölfræðilegra skekkjumarka.
Verðbólga síðasta árs mældist 1,7% milli ársmeðaltala og 1,3% yfir árið.Milli ára var verðbólgan hin sama og 1995 sem var sú næst lægsta síðan 1959. Spábankans í október gerði ráð fyrir 1,6% hækkun milli ára og 0,6% hækkun yfirárið.
Meginforsendur endurskoðaðrar spár gera ráð fyrir 3,7% hækkun umsaminna launaí upphafi þessa árs, um 2% launaskriði og 2,5% framleiðniaukningu í ár ogóbreyttu gengi frá deginum í dag. Einnig er gert ráð fyrir aðinnflutningsverðlag í erlendri mynt lækki á fyrri hluta ársins en snúist síðantil hækkunar á seinni hluta þess. Að lokum er gert ráð fyrir að hækkunmarkaðsverðs húsnæðis umfram almenna verðlagsþróun muni stuðla að meiri hækkunvísitölu neysluverðs á þessu ári en ella.
Í endurskoðaðri spá Seðlabankans er gert ráð fyrir því að verðbólga þessa ársverði 1,9%, mælt milli ársmeðaltala, og 2,2% yfir árið. Þetta er nokkur hækkunfrá spá bankans í október sl., en í henni var gert ráð fyrir 1,3% hækkun milliársmeðaltala og 2% hækkun yfir árið. Munar þar mest um meiri hækkanirvísitölunnar á síðasta ársfjórðungi 1998 en spáð hafði verið. Mikill vöxturinnlendrar eftirspurnar að undanförnu og vaxandi spenna á vinnumarkaði gætustuðlað að meiri verðbólgu þegar líður á árið en hér er spáð. Á móti kemur aðerlend verðþróun kann að verða hagstæðari en hér er reiknað með, sérstaklega áfyrri hluta ársins.
Seðlabankinn hefur einnig metið þróun raungengis krónunnar (sjá meðfylgjanditöflu). Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 1998 hækkaði raungengi á mælikvarðahlutfallslegs verðlags um 1,5% á milli áranna 1997 og 1998, en um 4,5% ámælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar á framleidda einingu. Gangi verðlagsspábankans eftir og að gefnu óbreyttu gengi krónunnar frá því sem það er nú munraungengi krónunnar á mælikvarða hlutfallslegs verðlags verða óbreytt á þessuári, en hækka um 0,7% á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar á framleiddaeiningu.
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson aðalhagfræðingur bankans, í síma569 9600.
Nr. 4/1999
15. janúar 1999