Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokmaí 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í mánuðinum ogfrá áramótum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um 2,3 milljarðakróna í maí og nam í lok mánaðarins 31,9 milljörðum króna (jafnvirði 430milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Frá ársbyrjun til loka maístyrktist forðinn hins vegar um 2,2 milljarða króna.
Ámillibankamarkaði með gjaldeyri seldi Seðlabankinn 1,2 milljarða króna afgjaldeyri í maí umfram það sem hann keypti. Gengi íslensku krónunnar, mælt meðvísitölu gengisskráningar, lækkaði um 0,4% í mánuðinum.
HeildareignSeðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 9,3 milljörðum króna í maílok miðaðvið markaðsverð og lækkaði um 1,9 milljarða króna í mánuðinum. Breytingin fólstnær öll í sölu ríkisvíxla bankans en í lok mánaðarins nam eign hans íríkisvíxlum 3,1 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanirlækkuðu um 0,5 milljarða króna í maí og námu þær 11,6 milljörðum í lokmánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig lítillega og voru5,4 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir hækkuðu um 4,2 milljarða króna í mánuðinum og voru neikvæðar um1,9 milljarða króna í lok maí.
Grunnfé bankans lækkaði um 0,7milljarða króna í mánuðinum og nam 21,1 milljarði króna í lokhans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 34/1999
4. júní 1999