Meginmál

Seðlabanki Íslands hækkar vexti

ATH: Þessi grein er frá 15. júní 1999 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans íviðskiptum við lánastofnanir. Ávöxtun í endurhverfum viðskiptum verður hækkuð um0,5 prósentustig í 8,4% á næsta uppboði og aðrir vextir bankans í viðskiptum viðlánastofnanir hækka samsvarandi frá 21. júní nk.

Að undanförnu hefur gætt vaxandi þrýstings til hækkunar verðlags og hefurhann birst í töluverðri hækkun vísitölu neysluverðs síðustu mánuði. Hækkuninstafar að hluta af sérstökum tilefnum, svo sem hækkun á verði olíuafurða áalþjóðamörkuðum og árstíðabundnum þáttum, en einnig virðist mikil innlendeftirspurn hafa leitt til hækkunar á verði vöru og þjónustu. Aðstæður hafa þvíbreyst frá því að Seðlabankinn hækkaði vexti í febrúar sl. Þá var útlit varfyrir að verðbólga á árinu yrði um 2% en nú virðist sem hún gæti orðið meiri en3% að óbreyttu.

Seðlabanki Íslands telur afar mikilvægt að áfram ríki stöðugleiki íverðlagsmálum og mun því enn beita ströngu aðhaldi í peningamálum eins og aðundanförnu. Tilgangur vaxtahækkunar bankans nú er að draga úr vexti innlendrareftirspurnar, styrkja gengi krónunnar og þar með að stuðla að því að verðbólgaverði minni en ella.

Auk þess að hækka vexti í febrúar sl. lagði Seðlabanki Íslands sem kunnugt erlausafjárkvöð á lánastofnanir og tóku reglur um hana gildi 21. mars sl.Lausafjárkvöðin hemur útlánagetu lánastofnana og kemur til framkvæmda í áföngumfrá 21. mars sl. til 21. júlí nk. en frá þeim tíma gildir hún af fullum þunga.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnarSeðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 36/1999

15. júní 1999