Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 5. júlí 1999 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningiSeðlabanka Íslands í lok júní 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamtbreytingum í mánuðinum.

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um0,7 milljarða króna í júní og nam í lok mánaðarins 31,1 milljörðum króna(jafnvirði 418 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). 

 Ámillibankamarkaði með gjaldeyri seldi Seðlabankinn 0,4 milljarða króna í júníumfram það sem hann keypti.  Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölugengisskráningar, hækkaði um 0,7% í mánuðinum.

 Heildareign Seðlabankansí markaðsskráðum verðbréfum nam 8,6 milljörðum króna í júnílok miðað viðmarkaðsverð og lækkaði um 0,7 milljarða í mánuðinum.  Breytingin fólst næröll í sölu ríkisvíxla bankans, en í lok mánaðarins nam eignin 2,3 milljörðum.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 3,9 milljarða í júní ognámu þær 15,5 milljörðum í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanirlækkuðu aftur á móti um tæpan 1 milljarð og  voru 4,5 milljarðar króna ílok hans.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 3,5milljarða króna í mánuðinum og voru neikvæðar um 5,3 milljarða króna í lokjúní. 

Grunnfé bankans jókst um 0,9 milljarða króna í mánuðinum og namþað 22 milljörðum króna í lok hans.

 Nánari upplýsingar veitabankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma569-9600.

Nr. 42/1999

5. júlí 1999